Kudus bætir gráu ofan á svart Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. janúar 2026 17:17 Mohamed Kudus hafði verið ljóstíra á myrku tímabili hjá Tottenham. Shaun Brooks - CameraSport via Getty Images Þegar rignir þá dembir í Norður-Lundúnum. Mohamed Kudus mun ekki spila næstu þrjá mánuði og bætist við langan meiðslalista Tottenham, sem er í alls kyns vandræðum í ensku úrvalsdeildinni.
Kudus fór meiddur af velli í þarsíðasta leik, jafntefli gegn Sunderland og lærismeiðslin munu halda honum frá keppni þangað til í apríl allavega. Nú þegar saknar Tottenham sóknarmanna á borð við James Maddison, Dejan Kulusevski og Dominic Solanke. Þá eru Rodrigo Bentancur og Lucas Bergvall líka að glíma við meiðsli. Það sást bersýnilega í 3-2 tapi liðsins gegn Bournemouth í gærkvöldi og tölfræðin sýnir að Tottenham er eitt versta lið deildarinnar sóknarlega séð. Þegar skot á markið, snertingar í teig andstæðinganna og vænt mörk eru talin er Tottenham í neðstu fimm sætum deildarinnar á öllum listum. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum og situr í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Þjálfarinn Thomas Frank er á hálum ís og ekki skoraði hann mörg stig hjá stuðningsmönnum þegar hann sást drekka úr Arsenal kaffibolla í gærkvöldi. Fyrirliðinn Christian Romero virðist síðan vera ósáttur við stjórnendur félagsins og saka þá um lygar, eins og kom fram í harðorðri færslu hans á samfélagsmiðlum sem hefur nú verið breytt.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira