Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. janúar 2026 11:32 Gurrý tók lagið með Ingó veðurguð og svo mættu margir góðir gestir, þar á meðal Lína Birgitta, Ásgeir Kolbeinsson og Hera Gísladóttir. Snyrtifræðingurinn Gurrý Jónsdóttir hélt upp á 35 ára afmæli sitt á Tenerife á laugardag og tróðu þar upp Ingó veðurguð, Prettyboitjokkó og Himpsumhaps. Fjöldi góðra gesta mætti en athygli vakti að áhrifavaldurinn Sólrún Diego, sem heldur úti hlaðvarpinu Spjallinu með Gurrýju og Línu Birgittu, mætti ekki.
Stelpurnar hafa síðan árið 2021 haldið úti hlaðvarpinu Spjallinu og gefið út á annað hundrað hlaðvarpsþátta. Þáttur númer 143 kom út 5. janúar síðastliðinn en þar ræddu stelpurnar um yfirvofandi afmælisfögnuð Gurrýjar og völvuspá fyrir árið. „Við erum að byrja árið á einhverri veislu,“ sagði Lína Birgitta um afmælið. „Ég er alltaf á Tenerife í janúar, það er svona hefð sem ég er með og alltaf yfir afmælið mitt. Ég ætlaði að hafa afmæli og hugsaði: „Ókei, það eru ótrúlega margir sem ég þekki á Tenerife þannig ég hendi í lítið, létt partý.“ Nei, nei, þetta er ekki lítið. Kristín Ruth, vinkona mín, sem er líka halda afmælið sitt á Tene, hún er fertug, sagði: „Mitt er bara eins og eitthvað vöffluboð við hliðina á þínu.“,“ sagði Gurrý í þættinum. Stelpurnar hafa verið með hlaðvarpið í rúm fjögur ár. Lýsti Gurrý því að afmælið yrði garðpartý í anda sjónvarpsþáttanna White Lotus. Bæði hún og Lína lýstu því síðan hvernig kjólum þær ætluðu að klæðast. „En þú, í hverju ætlar þú að vera? spurði Gurrý þá Sólrúnu og uppskar mikinn hlátur frá Línu. „Ég veit það ekki, það verður bara að koma í ljós,“ svaraði Sólrún. „Bara nakin?“ spurði Gurrý. „Já,“ svaraði húm um hæl. „Hún ætlar að vera á pjöllunni,“ sagði Lína þá glettin. Mörg tónlistaratriði og tugir gesta Fimm dögum síðar, 10. janúar, hélt Gurrý upp á 35 ára afmæli sitt í villunni Finca La Rosa de Los Vientos á Adeje á Tenerife. Villan er á Reykjavíkurgötu og hafa bæði Ásgeir Kolbeins og Svava Johansen leigt hana fyrir afmæli sitt á síðustu árum. Gurrý hafði fengið tónlistarmennina Ingó Veðurguð, Hipsumhaps og Prettyboitjokkó til að troða upp í veislunni og tók sjálf lagið með dóttur sinni auk þess sem Egill Einarsson, maður hennar, þeytti skífum. Heimilisleg tónlistaratriði. Tugir manna mættu í veisluna, þar á meðal áhrifavaldurinn Lína Birgitta og kírópraktorinn Gummi Kíró, kynlífstækjasölukonan Gerður í Blush, útvarpskonan Kristín Ruth, fjölmiðlamaðurinn Ásgeir Kolbeins og stjörnuspekingurinn Hera Gísladóttir og fjölmargir aðrir góðir. Gerður í Blush mætti. Förðunarfræðingurinn Sigurlaug Dröfn og athafnakonan Lína Birgitta. Hera og Ásgeir vel dressuð. Kristín Ruth var á svæðinu og fagnaði afmæli sínu líka á eyjunni. Vilma Ýr með afmælisbarninu. Aftur á móti var Sólrún Diego fjarri góðu gamni. Á sama tíma og gestir birtu myndir úr partýinu daginn eftir djammið var Sólrún að þrífa bletti úr drapplitaðri úlpu, horfa á Kardashian-fjölskylduna í sjónvarpinu og elda súpu fyrir fjölskyldu sína sem hafði farið á skíði. Huggulegt í kuldanum á Íslandi. Af hverju mætti Sólrún ekki? Kannski náðu þau hjónin ekki að redda pössun fyrir börnin, voru búin að skuldbinda sig í annað, höfðu ekki efni á ferðalaginu eða nenntu hreinlega ekki að gera sér ferð til Tenerife. Hún ein getur sagt til um það. Úlpa, Kim og súpa - heilög þrenning.
Íslendingar erlendis Spánn Tímamót Samkvæmislífið Kanaríeyjar Mest lesið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Lífið samstarf Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið Fleiri fréttir Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Sjá meira