Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu og sló andstæðing Aron Guðmundsson skrifar 12. janúar 2026 19:34 Samlandarnir Ronaldo, Rúben Neves og Joao Felix ræða saman eftir athyglisvert atvik í leik kvöldsins. Vísir/Getty Cristiano Ronaldo skoraði eina mark Al-Nassr í 3-1 tapi liðsins gegn Al-Hilal í toppslag sádi-arabísku deildarinnar í kvöld. Liðsfélagi Ronaldo missti stjórn á skapi sínu í leiknum og fékk að líta rauða spjaldið.
Ronaldo kom Al-Nassr yfir með fyrsta marki leiksins á 42.mínútu eftir stoðsendingu frá Kingsley Coman og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. Þegar að rétt rúmar tíu mínútur höfðu liðið af seinni hálfleik fengu heimamenn í Al-Hilal hins vegar vítaspyrnu þegar að Mohamed Simakan braut á Malcom innan vítateigs. Salem Al-Dawsari tók vítaspyrnuna fyrir Al-Hilal og kom boltanum af miklu öryggi í netið fram hjá Nawaf Alaqidi en þar með var ekki öll sagan sögð. Leikmenn Al-Hilal reyndu í flýti að sækja boltann úr markinu við litla hrifningu markvarðarins Alaqidi sem brást illur við og sló Rúben Neves, miðjumann Al-Hilal. Upprunalega fékk Rúben Neves að líta gula spjaldið frá dómara leiksins sem taldi að um leikaraskap af hans hálfu væri að ræða en eftir skoðun í VAR-sjánni var ekki annað hægt en að breyta þeim dómi í beint rautt spjald og var Alaqidi sendur í sturtu, Al-Nassr því einum manni færri. Nawaf Alaqidi missti stjórn á skapi sínu í kvöld.Vísir/Getty Það nýttu heimamenn í Al-Hilal sér því að á 81.mínútu kom Mohamed Kanno þeim yfir í stöðuna 2-1 með skoti af stuttu færi sem endaði í netinu eftir stoðsendingu Rúben Neves sem bætti svo sjálfur við þriðja marki liðsins í uppbótartíma og þar við sat. Risastór 3-1 sigur Al-Hilal staðreynd. Liðið er nú með sjö stiga forskot á Al-Nassr á toppi deildarinnar þegar að liðin hafa bæði leikið fjórtán leiki.
Sádiarabíski boltinn Sádi-Arabía Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Lille - Galatasaray | Hákon og félagar fá Tyrki í heimsókn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Sjá meira