Þrír af Strákunum okkar í upptalningu á þeim bestu fyrir EM Aron Guðmundsson skrifar 12. janúar 2026 23:16 Ómar Ingi Magnússon er einn af þeim bestu VÍSIR/VILHELM Þrjá íslenska landsliðsmenn er að finna í upptalningu Handbollskanalen á bestu leikmönnum í hverri stöðu á komandi Evrópumóti í handbolta.
Umfjöllun sænska miðilsins er ítarleg en fulltrúar miðilsins hafa valið fimm leikmenn í hverri stöðu vallarins úr þeim landsliðum sem hafa unnið sér þátttökurétt á komandi Evrópumóti sem fer fram í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Það kemur fæstum á óvart að Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Magdeburgar, sé einn þeirra leikmanna sem talinn er upp sem besta hægri skyttan á EM. Ómar Ingi í leik með íslenska landsliðinuVísir/Jón Gautur „Nánast enginn leikmaður hefur skorað jafn ört fyrir sitt lið eins og Ómar Ingi hefur gert fyrir Magdeburg í aðdraganda móts,“ segir í umfjöllun Handbollskanalen. „Hann hefur á ný náð þeim háa stalli sem hann stóð á fyrir nokkrum árum þegar að hann vær nær óstöðvandi. Hafandi í huga leikformið hjá Ómari Inga sem og liðsfélaga hans Gísla Þorgeiri er staðan mjög áhugaverð fyrir Ísland.“ Og talandi um Gísla Þorgeir Kristjánsson, liðsfélaga Ómars Inga hjá Magdeburg, þá telja spekingar Handbollskanalen hann vera einn af fimm bestu leikstjórnendunum á komandi Evrópumóti. Gísli Þorgeir Kristjánsson er mikilvægur fyrir stórlið Magdeburgar sem og íslenska landsliðið „Hann hefur verið öflugur á tímabilinu og er enn einn af þeim bestu í sinni stöðu á heimsvísu. Hraður, skapandi, óttalaus og mjög mikilvægur fyrir íslenska landsliðið á komandi Evrópumóti.“ Þá er Orri Freyr Þorkelsson, sem hefur farið mikinn með liði Sporting Lissabon á tímabilinu talinn vera einn besti vinstri hornamaður mótsins. Orri Freyr Þorkelsson í leik með íslenska landsliðinuGetty/Harry Langer „Leikmaður sem var hvergi nærri svona lista fyrir nokkrum árum síðan en hefur síðan þá tekið risastór skref í sinni þróun sem leikmaður. Markaskorari sem Sporting getur treyst á og er nú byrjunarliðsmaður í vinstra horninu hjá Íslandi. Eitthvað sem segir mér að þetta verður ekki í síðasta sinn sem við sjáum Orra Frey á svona lista.“ Komandi Evrópumót í handbolta hefst á fimmtudaginn kemur, þann 15.janúar. Íslenska landsliðið spilar í F-riðli mótsins með Ungverjalandi, Póllandi og Ítalíu. Fyrsti leikur Strákanna okkar er á föstudaginn gegn Ítalíu.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira