Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Árni Sæberg skrifar 13. janúar 2026 11:10 Skemman er ónýt eftir brunann. Vísir/Vilhelm Samkvæmt leigusamningi Reykjavíkurborgar og Truenorth um skemmuna í Gufunesi, sem brann í gær, ber borgin enga ábyrgð á tjóni á eignum Truenorth vegna brunans. Forsvarsmenn félagsins hafa sagt ómetanlega sögulega muni hafa verið í skemmunni þegar hún brann en hún var notuð undir gamla leikmuni.
Stórbruni varð í Gufunesi í Reykjavík í gær þegar skemma að Gufunesvegi brann til kaldra kola. Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Truenorth hafði skemmuna á leigu en Reykjavíkurborg er eigandi hennar. Fyrirtækið nýtti skemmuna undir gamla leikmuni og þess háttar en slökkvilið telur að allt sem í henni var sé ónýtt. „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta. Því þetta eru leikmunir sem við höfum verið að safna í gegnum árin þannig að þetta er verulegt tjón fyrir okkur. Það er ekkert tjón á mannskap eða neitt svoleiðis sem betur fer,“ sagði Guðjón Davíðsson, stjórnarformaður Truenorth, í samtali við fréttastofu í gærkvöldi. Upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar segir borgina harma tjón Truenorth. „Reykjavíkurborg harmar það tjón sem leigutakar hjá True North og aðrir sem áttu þar muni hafa orðið fyrir í brunanum sem varð í Gufunesi í gærkvöld. Skemman var leigð út að undangenginni auglýsingu í byrjun árs 2024 og leigutaki var upplýstur um að um væri að ræða tímabundna leigu í því ástandi sem húsið var á þeim tíma á meðan svæðin væru enn í skipulags- og uppbyggingaferli. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú upptök eldsins,“ segir í yfirlýsingu borgarinnar. Varað við rafmagninu Vettvangur brunans var afhentur lögreglu til rannsóknar í gærkvöldi en ekki liggur fyrir hvernig eldurinn kviknaði. Lögreglan hefur hins vegar ekki enn komist inn í skemmuna þar sem kviknað hefur í glæðum í nótt og í dag. Í febrúar 2024 birti Framfarafélag Gufuness færslu á Facebook-síðu sinni vegna þess að Reykjavíkurborg hafði auglýst skemmuna til leigu. Skemman hefur meðal annars verið kölluð Skemma 7. Framfarafélagið beindi spurningum til borgaryfirvalda um hvort búið væri að gera úrbætur á því sem ábótavant hafði verið á meðan skapandi starf var í húsinu. Meðal þess sem hópurinn taldi að gera þyrfti úrbætur á voru raflagnir skemmunnar. „Til þess að hægt sé að byggja upp skapandi starfsemi á svæðinu er nauðsynlegt að borgin sinni viðhaldi á húsnæðinu sem hún leigir út, hér eins og annars staðar,“ sagði í Facebook-færslu framfarafélagsins. Leigðu skemmuna tímabundið Í leigusamningi Reykjavíkurborgar og Truenorth um skemmuna, sem undirritaður var þann 14. mars árið 2024, segir að borgin hafi auglýst húsnæðið til leigu um miðjan febrúar sama árs. Við skoðun hafi komið fram að húsnæðið yrði leigt í því ástandi sem það var og að Reykjavíkurborg myndi ekki leggja til fjármagn til endurbóta eða viðhalds skemmunnar. „Ennfremur var leigutaki upplýstur um að hugmyndafræði verkefnisins væri að auglýsa eftir tímabundnum leigjanda á meðan svæðin væru enn í skipulags- og uppbyggingarferli. Leigutaka var bent á að skoða vandlega kosti og galla húsnæðisins.“ Ekki í samræmi við húsaleigulög Í samningum segir að skemman sé rúmlega 1.100 fermetrar og leiguverðið 1.100 þúsund krónur á mánuði, rétt tæplega eitt þúsund krónur á fermetrann. Leigukjör taki mið af ástandi skemmunnar og verkefninu, sem hugsað sé til skamms tíma. „Hið leigða er afhent í núverandi ástandi sem leigutaki hefur kynnt sér og sætt sig við að öllu leyti, þar með taldar hugsanlegar myglu-, raka- og vatnsskemmdir sem leigutaki gerir ekki athugasemd við. Með vísan til þess er leigutaka ljóst að ástand hins leigða er ekki að öllu leyti í samræmi við kröfur III. kafla húsaleigulaga, nr. 36/1994 og almennar venjur um ástand leiguhúsnæðis við afhendingu þess,“ segir um ástand hússins. Lágreistari skemman hér til vinstri er skemman sem brann.Vísir/Viktor Freyr Þá segir að Truenorth sé skylt að fara í hvívetna með hið leigða og lóð þess á þann hátt sem samræmist góðum og viðteknum venjum um umgengni hreinlæti og hollustuhætti. Félaginu séu óheimilar allar breytingar á hinu leigða án samþykkis borgarinnar. Allar endurbætur á hinu leigða verði eign leigusala að samningstíma loknum nema um annað sé samið. „Vegna skaðaminnkunar- og öryggissjónarmiða er leigutaka óheimilt að nota blá ljós á salernum í hinu leigða húsnæði.“ Engin ábyrgð á tjóni Þá segir að Truenorth annist allar tryggingar á eignum sínum í hinu leigða húsnæði, til að mynda húseigendatryggingu. „Leigusali ber ekki ábyrgð á tjóni er kann að verða á eignum leigutaka í hinu leigða húsnæði vegna óhapps, svo sem vatnstjóns, elds, reyks og þess háttar. Leigutaka ber að fara varlega með eld og hættuleg efni í húsinu og gæta þess að ekki stafi hætta af rafleiðslum, vélum eða öðrum munum sem eru á hans vegum.“ Leigusamninginn má sjá í heild sinni í tengdum skjölum hér að neðan. Tengd skjöl Gufunesvegur_25_-_Húsaleigusamningur_2024_-_Propps_house_True_North_mars_2024PDF2.5MBSækja skjal
Reykjavík Slökkvilið Bruni í skemmu í Gufunesi Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira