Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2026 10:00 Dómarinn Anthony Taylor fer á skjáinn á leik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Getty/ James Gill VAR-mistökum hefur fjölgað á fyrri helmingi enska úrvalsdeildartímabilsins og það virðist vera sem myndbandsdómarar séu ekki alveg að ná betri tökum á starfi sínu þrátt fyrir meiri reynslu og betri æfingu.
Gögn frá nefnd ensku úrvalsdeildarinnar um lykilatvik í leikjum sýna að mistökum hefur fjölgað um þrjátíu prósent á milli tímabila, úr tíu í þrettán. Þetta er þó enn töluverð framför miðað við fyrri ár, en tuttugu mistök voru á þessu stigi tímabilsins 2023-24 og 23 á tímabilinu 2022-23. VAR hefur ekki gripið inn í Næstum allar villurnar stafa af því að VAR hefur ekki gripið inn í, þegar myndbandsdómgæslan hefur ekki látið dómara vita að breyta þurfi ákvörðun, en ekki af röngum VAR-endurskoðunum. Athyglisvert er að heildarfjöldi ákvarðana sem hefur verið hnekkt hefur fækkað úr 57 á síðasta tímabili í 47 á þessu tímabili (17,5 prósent fækkun), sem þýðir að VAR grípur sjaldnar inn í heildina. Þegar þetta er tekið saman benda gögnin til þess að aukning villna snúist minna um tæknina og meira um hik við ákvarðanatöku, sérstaklega þegar kemur að rauðum spjöldum og vítaspyrnum. Bitnað mest á þremur félögum Mistökin hafa bitnað mest á þremur félögum en Bournemouth, Brenford og Manchester United hafa öll lent í því tvisvar að VAR-mistökin hafi bitnað á þeim. Liverpool er í hópi þeirra sjö félaga sem hafa einu sinni orðið fyrir barðinu á röngum VAR-dómi en hin eru Brighton, Crystal Palace, Everton, Fuham, Manchester City og Wolves. Það þýðir að tíu félög hafa sloppið alveg en það eru Arsenal, Aston Villa, Chelsea, Brentford, Newcastle, Burnley, Nottingham Forest, Tottenham, Leeds og West Ham. Chelsea græðir mest Chelsea er aftur á móti það félag sem hefur grætt mest á VAR-mistökum eða þrisvar sinnum. Bournemouth og Newcastle hafa gætt tvisvar á slíkum mistökum en Arsenal, Brentford, Everton, Tottenham, West Ham og Wolves hafa öll hagnast einu sinni á mistökum VAR-sjárinnar. Hér má sjá þessi atriði þar sem nefnd ensku úrvalsdeildarinnar um lykilatvik í leikjum hefur útskurðað að myndbandsdómarar hafi gert mistök. View this post on Instagram A post shared by BBC SPORT (@bbcsport)
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Sjá meira