„Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sindri Sverrisson skrifar 29. október 2026 15:45 Michael Carrick og hans menn þurfa nauðsynlega að svara fyrir sig gegn Chelsea á laugardaginn. Getty/Dave Howarth Michael Carrick er þvert á allar spár enn þjálfari Manchester United og hann fór yfir stöðuna á blaðamannafundi í dag, fyrir leikinn við Chelsea í hádeginu á laugardag.
Carrick var yfirvegaður á fundinum og sagði síðustu daga hafa verið nýtta í að skoða hvað fór úrskeiðis í tapinu gegn Bournemouth á sunnudaginn og hvaða breytingar þyrfti að gera fyrir Chelsea-leikinn. Hávær umræða var um það í byrjun vikunnar að dagar Carrick hjá United væru taldir en eftir fundahöld stjórnenda er hann enn í starfi. Aðspurður hvort að hann hefði fengið fullvissu yfirmanna sinna um að á hann yrði áfram treyst svaraði þjálfarinn: „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum. Ég skil algjörlega stöðuna, hvernig starfið er og hvaða ábyrgð fylgir því. Ég þarf því ekki fullvissu frá öðrum,“ en blaðamannafundinn í heild má sjá hér að neðan. Klippa: Carrick á blaðamannafundi Fyrrverandi liðsfélagar Carricks og fleiri hafa verið áberandi í umræðunni um stöðu hans og umræðan hefur vægast sagt verið mikil: „Ég horfi bara á það sem ég þarf að horfa á. Ég leita ekki eftir þessu og sé það ekki hjálpa neitt. Það sem skiptir mig máli er hvað stuðningsmönnum finnst og hvernig andrúmsloftið er á leikvanginum. Mér er annt um það sem við færum þeim og þeir fá að sjá en ég hugsa ekki um neitt annað. Ég þekki starfið og veit til hvers er ætlast,“ sagði Carrick. Hann kippti fyrirliðanum Bruno Fernandes út úr byrjunarliðinu eftir að Portúgalinn gagnrýndi taktík United, í viðtali eftir tapið gegn Como í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku, en segir allt í góðu þeirra á milli. „Þetta var ákvörðun sem við tókum út frá því sem við töldum best fyrir leikinn. Ekki flóknara. Bruno leggur sig allan fram fyrir þetta knattspyrnufélag og það eru engin vandamál varðandi það. Við tökum ákvarðanir eftir því sem fram gengur og hlökkum bara til leiksins á laugardaginn.“ Þá greindi Carrick frá því að miðjumaðurinn Kobbie Mainoo væri byrjaður að æfa aftur eftir meiðsli en sagði meiðsli Benjamins Sesko áfall, sérstaklega fyrir leikmanninn sjálfan, en nú er komið í ljós að hann verður frá keppni fram á næsta ár.
Enska augnablikið Manchester United Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira