Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Ímark 16. janúar 2026 15:01 Veitt eru verðlaun í fjölda flokka, þar á meðal fyrir auglýsingaherferðir, stafrænar lausnir, hönnun, almannatengsl og samfélagsverkefni. Opið er fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025, verðlaun samtaka markaðsfólks á Íslandi.
Keppnin er haldin af ÍMARK í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa og eru öll hvött til að senda inn verk sín fyrir lokafrest, sem er 22. janúar. Lúðurinn veitir viðurkenningu fyrir frumlegar, skapandi og snjallar hugmyndir sem eru útfærðar á framúrskarandi hátt. Verðlaunin eru veitt fyrir árangur, fagmennsku og sköpun í samskiptum fyrirtækja við almenning. Árið 2025 verður Lúðurinn veittur í 40. sinn og markar það tímamót í sögu verðlaunanna. Lúðurinn hefur um árabil verið uppskeruhátíð markaðs- og auglýsingafólks og einn virtasti mælikvarði á gæði og þróun í greininni hér á landi. Veitt eru verðlaun í fjölda flokka, þar á meðal fyrir auglýsingaherferðir, stafrænar lausnir, hönnun, almannatengsl og samfélagsverkefni. Dómnefndir, skipaðar reynslumiklu fagfólki úr greininni, leggja mat á hugmyndavinnu, framkvæmd og mælanlegan árangur verkanna. Skipuleggjendur segja þátttöku í keppninni endurspegla fjölbreyttar og nýstárlegar leiðir sem fyrirtæki og auglýsingastofur nýta til að ná til markhópa í síbreytilegu fjölmiðlaumhverfi.
Auglýsinga- og markaðsmál Menning Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira