„Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2026 14:41 Virgil van Dijk og félagar í Liverpool misstu niður forskot og urðu að sætta sig við jafntefli gegn Burnley. getty/Dan Istitene Fyrirliði Liverpool, Virgil van Dijk, segir eitthvað vanta hjá liðinu. Englandsmeistararnir gerðu 1-1 jafntefli við nýliða Burnley í gær.
Liverpool hefur gert jafntefli í síðustu fjórum leikjum sínum. Eftir leikinn á Anfield í gær létu stuðningsmenn liðsins leikmennina heyra það. Liverpool náði forystunni með marki Florians Wirtz skömmu fyrir hálfleik en Marcus Edwards jafnaði fyrir Burnley á 65. mínútu. Dominik Szoboszlai skaut í slá úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. „Eftir sextíu mínútur urðum við værukærir og ekki í fyrsta sinn. Við þurfum að taka á því. Við höfum rætt um það en við þurfum greinilega að tækla þetta aftur,“ sagði Van Dijk eftir leikinn í gær. „Við höfum aðra 48 klukkutíma til að skoða þetta, við og starfsliðið munum funda og bregðast við. Það vantar eitthvað um þessar mundir og við viljum breyta því.“ Liverpool er langt á eftir toppliðunum og þarf að hafa sig alla við til að halda sér í Meistaradeildarsæti. „Þetta er raunveruleikinn og við þurfum stuðning. Ég er ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna,“ sagði Van Dijk. Liverpool mætir Marseille í næstsíðustu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn. Rauði herinn er í 9. sæti Meistaradeildarinnar en efstu átta liðin komast beint í útsláttarkeppnina.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Englandsmeistarar Liverpool gerðu 1-1 jafntefli við nýliða Burnley á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fjórða jafntefli Rauða hersins í röð. 17. janúar 2026 16:55 Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira
Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Englandsmeistarar Liverpool gerðu 1-1 jafntefli við nýliða Burnley á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fjórða jafntefli Rauða hersins í röð. 17. janúar 2026 16:55