Víða rigning og kólnar í veðri Atli Ísleifsson skrifar 19. janúar 2026 07:14 Það mun kólna heldur í veðri og verður hiti núll til fimm stig í kvöld. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustlægri átt í dag þar sem verður allvíða átta til fimmtán metrar á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning á norðan- og austanverðu landinu, en skúrir eða él sunnantil. Það mun létta til norðanlands eftir hádegi og austantil undir kvöld. Kólnar heldur í veðri og hiti núll til fimm stig í kvöld. „Á morgun verður austlæg átt 5-13 m/s. Skúrir eða él sunnantil, en léttskýjað að mestu fyrir norðan. Snjókoma eða slydda á austanverðu landinu eftir hádegi og einnig á Norðurlandi undir kvöld. Léttir til í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið. Vaxandi austanátt á miðvikudag, 10-18 m/s seinnipartinn. Skúrir, einkum suðaustantil og hiti 3 til 8 stig. Þurrt að kalla á norðan- og norðvestanlands og hiti þar nálægt frostmarki,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan og suðaustan 5-10 m/s og él eða skúrir, hiti 0 til 5 stig. Hægari og yfirleitt þurrt á norðanverðu landinu með vægu frosti. Rigning eða slydda á Suðausturlandi og Austfjörðum seinnipartinn, en þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Á miðvikudag: Hægt vaxandi austanátt, 8-15 seinnipartinn. Rigning eða slydda af og til sunnan- og austanlands, annars yfirleitt þurrt í veðri. Hiti 2 til 7 stig, en vægt frost norðvestantil á landinu. Á fimmtudag: Austan 10-15, en 15-20 við suðurströndina. Rigning með köflum sunnan- og austantil og á Vestfjörðum, annars þurrt. Hiti 2 til 7 stig. Á föstudag og laugardag: Austlæg átt. Lítilsháttar skúrir eða él á austanverðu landinu, en bjartviðri vestantil. Hiti kringum frostmark að deginum. Á sunnudag: Útlit fyrir austlæga átt. Bjart með köflum og sums staðar dálítil él, en léttskýjað og þurrt á vestanverðu landinu. Frost 0 til 7 stig.
Veður Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Sjá meira