Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. janúar 2026 15:59 Bráðamóttakan í Fossvogi. Vísir/Vilhelm Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið.
Mikið álag hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans vegna gríðarlegrar hálku sem var á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Á þriðjudag var flughált á höfuðborgarsvæðinu og á hádegi höfðu á þriðja tug manna leitað á bráðamóttökuna vegna hálkuslysa. Í tilkynningu frá spítalanum segir að alls hafi níutíu leitað á bráðamóttökuna og reyndust 35 þeirra vera með beinbrot eða liðhlaup. Tuttugu af þessum níutíu voru börn. Leggja þurfti fimm einstaklinga inn á Landspítala fyrir sérhæfðari meðferð. „Eftir því sem næst verður komist er þetta mesti fjöldi sem hefur leitað á bráðamóttökuna á einum sólarhring vegna hálkuslysa í sögu deildarinnar,“ segir í tilkynningunni. „Hálkan sem myndaðist þessa daga hefur valdið mörgum heilsutjóni og slíku fylgir umtalsverður kostnaður fyrir samfélagið. Mikilvægt er að efla hálkuvarnir þegar slíkar aðstæður skapast, auk þess sem eindregið er mælt með því að fólk noti mannbrodda í hálkunni og fari varlega.“ Á þriðjudag sagði Aaron Palomares, sérnámslæknir bráðdeildar, að hann og kollegar hans hefðu ekki upplifað dag líkt og þennan.
Landspítalinn Færð á vegum Veður Umferðaröryggi Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira