Slær áfram í storm á suðurströndinni Atli Ísleifsson skrifar 27. janúar 2026 07:14 Hiti verður á bilinu núll til sex stig, en um eða undir frostmarki á Norður- og Austurlandi. Vísir/Vilhelm Víðáttumikið lægðasvæði suður af landinu hefur viðhaldið austanáttum frá því í síðustu viku og mun halda því áfram fram yfir næstu helgi. Síðasta sólarhringinn hefur verið austanhvassviðri eða stormur með suðurströndinni og heldur það áfram í dag.
Á vef Veðurstofunnar segir að í nótt hafi mælst 30 metrar á sekúndu á Stórhöfða í Vestmannaeyjum en slíkar aðstæður geta verið varasamar fyrir bíla sem taka á sig mikinn vind. „Einnig gæti orðið hvasst og hviðótt við Esjuna upp úr hádegi og einhver væta fallið um tíma á suðvesturhorninu. Það þykknar upp á vestanverðu landinu í dag, bætir í úrkomu Sunnanlands og áfram falla él eða slydduél fyrir austan. Hiti um frostmark fyrir norðan, en upp í 6 stig sunnan heiða.Á morgun dregur hægt og rólega úr vindi og úrkomu, það léttir til vestanlands og kólnar lítillega á landinu öllu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan og norðaustan 8-15 m/s, en 15-23 með suður- og suðausturströndinni. Bjart með köflum á vestanverðu landinu, en él eða skúrir fyrir austan. Hiti í kringum frostmark, en allt að 6 stigum sunnantil. Á fimmtudag: Minnkandi austanátt, 5-13 m/s síðdegis, hvassast syðst. Skúrir eða slydduél, en þurrt að mestu norðvestantil. Hlýnar lítilllega. Á föstudag: Austlæg átt 5-10 m/s og dálítil él eða slydduél, en þurrt vestanlands. Hiti um frostmark, en víða vægt frost norðanlands. Á laugardag og sunnudag: Norðaustan- og austanátt og rigning eða slydda, einkum suðaustanlands, en þurrt norðvestantil. Hiti 1 til 5 stig. Á mánudag: Útlit fyrir áframhaldandi austlægar áttir og úrkomu í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Sjá meira