Bjargráð Heiða Kristín Helgadóttir skrifar 28. janúar 2026 13:32 Til að ná góðum árangri í kosningum þarf þrennt að fara saman - mikil vinna, góð tilfinning fyrir tímasetningum og heppni. Á laugardaginn næstkomandi fer fram oddvitaprófkjör Viðreisnar í Reykjavík. Ég styð og treysti Björgu Magnúsdóttur til þess að leiða lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor og vona að félagar í Viðreisn veiti henni umboð til þess. Ég hef aldrei þekkti Björgu öðruvísi en þannig að hún hafi verið með nokkur stór verkefni í gangi í einu. Hún skrifar bækur og sjónvarpsseríur, stýrir útvarps- og sjónvarpsþáttum, giftir fólk, gefur börnum nöfn og fermir og stígur svo inn í stjórnmál sem aðstoðarmaður borgarstjóra, milli þess sem hún eignast barn og heldur saman nútímafjölskyldu. En samt hefur hún alltaf pláss til að veita fólki óskipta athygli og sýna því áhuga. Hvað sem á dynur gefur hún sér tíma til að hlusta, taka inn og veita gagnlega endurgjöf sem er kjarnyrt og ekki bara dregin fram til að segja eitthvað. Þannig hefur Björg einstakt lag á því að vinna að mörgum verkefnum í einu og sigla þeim koll af kolli í í höfn af mikilli natni. Kosningabaráttan hefur dregið fram þessa styrkleika hennar. Þannig hefur ólíklegasta fólk, sem hingað til hefur ekki viljað skipta sér af stjórnmálum, og aðrir sem hafa mikinn áhuga úr ólíkum áttum, stigið fram henni til stuðnings og það kemur mér ekki á óvart því hún hefur þannig áhrif á fólk. Alls staðar þar sem Björg kemur hrífur hún fólk með sér. Ég treysti engri betur til að ná árangri fyrir Viðreisn í kosningunum í vor. Björg vinnur vinnuna, skilur leikinn og er óhrædd við að grípa tækifærin. En það er eitt að vinna prófkjör en annað að ná árangri fyrir flokkinn í kosningunum í vor. Það getur reynst hinum almenna kjósanda snúið að bera skynbragð á það hvort oddviti sé latur eða duglegur, en hann skynjar orkuna og stemminguna. Með Björgu í forystu hef ég engar áhyggjur, því hún er vinnuþjarkur og stemmingskona. Hún mætir á staðinn, gerir það sem þarf að gera og heldur uppi andanum á meðan. Björg hefur líka sterka tilfinningu fyrir tímasetningum og kann að stíga ölduna og skapa sér tækifæri í krefjandi aðstæðum. Ofan á þetta bætist svo mikilvægasti eiginleikinn - sem alltof fáir hafa - að tala þannig að kjósendur heyri og skilji. Það er get ég vottað að Björg gerir vel. Hún segir það sem þarf að segja, þegar að það þarf að segja það. Heppni, er eins og áður segir, stór hluti af því að ná árangri í kosningum En ef þú vinnur ekki vinnuna, ert ekki undirbúinn og talar yfir kjósendur en ekki beint til þeirra þá skiptir engu máli hvaða forsjá vakir yfir þér og framboðinu - þú munt ekki ná í gegn. Viðreisn hefur hér kjörið tækifæri til að stækka og höfða til breiðari hóps en vel menntaðra millistjórnenda sem hafa einstakan áhuga á excel skjölum og Evrópusambandinu. Heppin þau að fá að velja Björgu á laugardaginn. Höfundur er fyrrverandi stjórnmálakona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar