Shabazz látinn fara frá Grindavík Aron Guðmundsson skrifar 30. janúar 2026 17:21 Khalil Shabazz sækir hér á körfuna í leik með Grindavík Vísir/Anton Bandaríski leikstjórnandinn Khalil Shabazz hefur verið látinn fara frá toppliði Bónus deildarinnar í körfubolta, Grindavík.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Grindvíkingum núna seinni partinn en Shabazz gekk í raðir félagsins fyrir yfirstandandi tímabil. Shabazz hefur komið við sögu í sextán leikjum með Grindvíkingum í Bónus deildinni og er hann með 23 skoruð stig að meðaltali í þeim leikjum, 4,6 fráköst og fimm stoðsendingar. Hávær orðrómur hafði verið á kreiki þess efnis að Grindvíkingar ætluðu að hrófla til í leikmannahópi sínum fyrir lok félagsskiptagluggans núna um helgina og aðspurður um það hafði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga, þetta að segja: „Við erum bara að skoða ýmis mál. Það er stutt í þetta og við erum að renna á rassgatið með þetta. Við höfum fram á miðnætti á laugardag og við sjáum bara hvað verður. Við erum að skoða eitt og annað en ekkert fast í hendi.” Jeremy Pargo, leikstjórnandi sem spilaði með Grindavík á síðasta tímabili er sterlega orðaður við endurkomu til félagsins. Pargo spilaði fimmtán leiki með Grindavík í Bónus deildinni á síðasta tímabili og setti niður 20 stig að meðaltali í þeim leikjum, tók 5,7 fráköst og 7,4 stoðsendingar. Bandaríkjamaðurinn er hokinn af reynslu og spilað á sínum tíma tvö tímabil í NBA-deildinni, með Memphis Grizzlies 2011-12 og svo Cleveland Cavaliers og Philadelphia 76ers 2012-13. Seinni leiktíðina spilaði hann að meðaltali 17,9 mínútur í leik með Cleveland og 14,9 mínútur með Philadelphia. Hann var svo einnig hjá Golden State Warriors og spilaði þar þrjá leiki tímabilið 2019-20.
Bónus-deild karla Körfubolti UMF Grindavík Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira