Getur hver sem er boðið sig fram til sveitarstjórna? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 15:33 Stutta svarið er: Já. Einstaklingur sem er 18 ára eða eldri, með íslenskan ríkisborgararétt og óflekkað mannorð, getur boðið sig fram til sveitarstjórna samkvæmt lögum. En er það svo einfalt? Langa svarið er: Lögin eru skýr. Aðgengið er það ekki.Í aðdraganda kosninga er ætlast til þess að frambjóðendur séu sýnilegir, tiltækir og virkir. Þeir mæta í pallborðsumræður, heimsækja vinnustaði, taka þátt í útvarps- og sjónvarpsviðtölum, taka upp hlaðvörp, búa til efni fyrir samfélagsmiðla, sitja lokaða fundi og ræða við kjósendur á almenningsstöðum. Þetta er ekki aukaverkefni. Þetta er vinna. Spurningin er því ekki hvort framboð sé full vinna, heldur hvort við viljum að það sé það. Og ef svarið er já, þá verðum við líka að spyrja: hverjir hafa raunverulega tök á því að sinna þessari vinnu? Hér fer aðgengið að skekkjast. Kjörnir fulltrúar sem sækjast eftir endurkjöri eru á launum fram að kosningum. Þeir hafa tíma, tengsl, sýnileika og fjárhagslegt öryggi til að sinna framboði sínu. Nýir frambjóðendur þurfa hins vegar oft að semja við vinnuveitendur, taka launalaust leyfi, vinna kvöld og helgar, samræma framboð við vaktavinnu og fjölskyldulíf eða einfaldlega hætta við áður en þeir byrja. Er þetta fyrirkomulag til þess fallið að tryggja að hver sem uppfyllir skilyrði laganna geti boðið sig fram? Eða tryggir það fyrst og fremst að þeir sem þegar eru inni í kerfinu eigi greiðari leið áfram? Framboð kosta ekki bara tíma heldur líka peninga. Sjálfboðavinna, auglýsingar, kynningarefni, viðburðir og ferðalög safnast hratt upp. Við höfum séð prófkjör þar sem frambjóðendur verja milljónum til að ná athygli kjósenda. Það er ekki endilega rangt – en það útilokar fólk. Hvað með þá sem eru ekki fjársterkir? Hvað með þá sem lifa af launum sínum frá mánuði til mánaðar? Aðgengi að framboði mótast líka af aðstæðum á vinnumarkaði. Fólk starfar í vaktavinnu, í þjónustu, í heilbrigðiskerfinu, í skólum, í sjálfstæðum rekstri. Ekki allir vinnuveitendur eru tilbúnir að sýna skilning þegar starfsmaður vill taka virkan þátt í lýðræðislegu starfi. Sumir styðja slíkt heilshugar. Aðrir gera það ekki og geta, beint eða óbeint, staðið í vegi fyrir framboði. Það er ekki ólöglegt. En áhrifin eru raunveruleg. Þegar þetta allt er lagt saman: tíminn, peningarnir, vinnan, fjölskyldulífið og viðhorf vinnuveitenda að þá verður ljóst að lagalegt aðgengi segir ekki alla söguna. Að geta boðið sig fram á pappír er ekki það sama og að hafa raunhæfa möguleika til þess. Ef við viljum sveitarstjórnir sem endurspegla samfélagið í allri sinni fjölbreytni, þá verðum við að horfa lengra en í lagatextann. Við verðum að spyrja hverjir detta út áður en þeir fá tækifæri. Hverjir hafa áhuga, hæfni og vilja - en ekki aðstæður. Lagalega séð getur hver sem er boðið sig fram. Raunverulega séð er það forréttindi sem ekki allir hafa. Og kannski er kominn tími til að ræða það af alvöru. Höfundur er í framboði í oddvitasæti Viðreisnar á Akureyri og varaþingmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar