Þegar miðstýring er kölluð hagræðing Liv Ása Skarstad skrifar 3. febrúar 2026 06:01 Ég ólst upp í 101 Reykjavík og þekki vel hvernig það er að hafa alla þjónustu innan seilingar. Fyrir rúmum tuttugu árum flutti ég hins vegar á Akranes og hef síðan þá verið stoltur íbúi landsbyggðarinnar. Það var meðvituð ákvörðun sem ég hef aldrei séð eftir. Ég valdi að búa í sterku samfélagi utan höfuðborgarsvæðisins, rétt eins og tugþúsundir annarra Íslendinga. Þess vegna snertir það mig djúpt þegar teknar eru ákvarðanir sem grafa undan þeirri búsetu. Nýsamþykkt lög Alþingis um að fækka sýslumannsembættum úr níu í eitt eru skýrt dæmi um slíka ákvörðun. Hún er kynnt sem hagræðing og framfaraskref, en í raun er hér um að ræða hreina miðstýringu. Undir yfirskini skilvirkni er verið að færa störf, vald og þjónustu frá byggðum landsins og draga allt inn á höfuðborgarsvæðið. Þetta er gömul saga í nýjum búningi. Sýslumannsembættin eru ekki bara stjórnsýslueiningar á blaði. Þau eru raunverulegir vinnustaðir og mikilvæg þjónusta við fólk í nærumhverfi þess. Þegar þau eru sameinuð í eina miðlæga stofnun er verið að slíta tengsl sem skipta máli, fækka störfum úti á landi og gera þjónustuna fjarlægari. Það er erfitt að sjá hvernig það á að skila „betri þjónustu við almenning“, nema almenningur sé skilgreindur eingöngu sem íbúar höfuðborgarsvæðisins. Staðreyndin er einföld: ekki búa allir í Reykjavík, og það er vegna þess að fólk kýs að búa annars staðar. Fólk velur Akranes, Vestfirði, Norðurland, Austurland og Suðurland. Sú ákvörðun á að njóta virðingar. Í staðinn fáum við aftur og aftur skilaboð um að þjónusta og störf eigi helst heima á einu svæði landsins. Það er hroki gagnvart landsbyggðinni og þeim sem þar búa. Ég er sérstaklega vonsvikin með þá þingmenn ríkisstjórnarinnar sem sjálfir koma af landsbyggðinni en kusu samt að styðja þetta frumvarp. Þeir vita nákvæmlega hvaða áhrif svona ákvarðanir hafa á sín heimahéruð, en kusu að fylgja flokkslínu fremur en hagsmunum fólksins sem kaus þá. Það eru mikil vonbrigði. Ég er jafnframt vonsvikin með þá þingmenn stjórnarandstöðunnar sem ákváðu að sitja hjá. Þegar verið er að taka jafn afdrifaríka ákvörðun fyrir framtíð landsbyggðarinnar er ekki boðlegt að forðast ábyrgð. Ríkisstjórnin talar oft um byggðastefnu og jafnvægi milli landshluta. En byggðastefna sem birtist eingöngu í ræðum en ekki í raunverulegum ákvörðunum er einskis virði. Raunveruleg byggðastefna felst í því að efla opinber störf úti á landi, dreifa valdi og tryggja að þjónusta ríkisins sé aðgengileg fólki hvar sem það býr. Þetta frumvarp gerir hið gagnstæða. Ég tala um þetta bæði sem íbúi landsbyggðar og sem bæjarfulltrúi á Akranesi. Við sveitarfélög um allt land erum stöðugt hvött til að efla samfélög okkar, skapa störf og styrkja þjónustu. En á sama tíma dregur ríkisvaldið til sín verkefni og tækifæri. Sú þróun er ekki sjálfsögð og hún er ekki óumflýjanleg. Hún er pólitísk ákvörðun. Landsbyggðin er ekki vandamál sem þarf að einfalda eða skera niður. Hún er undirstaða Íslands. Hún á skilið þingmenn sem standa með henni þegar á reynir, ekki fulltrúa sem láta miðstýringarhugsun ráða för. Með þessari ákvörðun var stigið skref í ranga átt, og það er skylda okkar að segja það skýrt. Ísland á að vera land fyrir alla – ekki bara fyrir þá sem búa innan 101.Höfundur er stoltur íbúi landsbyggðarinnar og bæjarfulltrúi á Akranesi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Akranes Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar