Reykjavík ársins 2030 Berglind Sunna Bragadóttir skrifar 3. febrúar 2026 09:02 Við Reykvíkingar göngum að kjörkössunum þann 16. maí næstkomandi og veljum okkur þá fulltrúa sem munu leiða borgina okkar fram til ársins 2030. Því er stóra spurningin þessa dagana – hvernig viljum við að lífið í Reykjavík verði árið 2030? Sívaxandi hópur stjórnmálafólks gengst nú við því að breytinga sé þörf, nokkuð sem borgarbúar hafa lengi bent á. Enda hefur reynsla síðustu ára sýnt að vandinn í Reykjavík er ekki skortur á hugmyndum, heldur skortur á forgangsröðun, eftirfylgni og samvinnu. Borgarkerfið er orðið flókið, þungt í vöfum og of oft mótað af afmörkuðum áherslum og þröngri hugmyndafræði frekar en heildarhagsmunum og vilja íbúa. Afleiðingin er að jafnvel einföld verkefni festast í ferlum, nefndum og pólitískum skotgröfum. Borgin ætti fyrst og fremst að beina kröftum sínum að því að sinna grunnhlutverki sínu vel. Það þýðir ekki að fyrirætlanir og stefna megi ekki vera metnaðarfull, heldur er það forsenda þess að stefnan verði að raunveruleika. Án trausts rekstrar, ábyrgra fjármála og skýrrar forgangsröðunar verður hvorki svigrúm til umbóta né nýsköpunar í þjónustu borgarinnar. Ég tel að stærsta áskorunin næsta kjörtímabils verði að breyta vinnubrögðum í borgarstjórn. Að færa umræðuna frá hugmyndafræðilegum átökum yfir í lausnir sem þjóna breiðum hópi borgarbúa. Til þess þarf fólk sem er reiðubúið að vinna þvert á flokka, halda fókus þegar á móti blæs og fylgja málum eftir allt til enda. Breytingar verða ekki gerðar með yfirlýsingum einum saman. Þær krefjast þrautseigju og festu, þess að við þorum að velja einfaldar, skynsamar lausnir fram yfir flókin kerfi sem litlu skila. Þar tel ég að Framsókn hafi skýra sérstöðu og þar vil ég leggja mitt af mörkum. Höfundur býður sig fram í 3. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Við Reykvíkingar göngum að kjörkössunum þann 16. maí næstkomandi og veljum okkur þá fulltrúa sem munu leiða borgina okkar fram til ársins 2030. Því er stóra spurningin þessa dagana – hvernig viljum við að lífið í Reykjavík verði árið 2030? Sívaxandi hópur stjórnmálafólks gengst nú við því að breytinga sé þörf, nokkuð sem borgarbúar hafa lengi bent á. Enda hefur reynsla síðustu ára sýnt að vandinn í Reykjavík er ekki skortur á hugmyndum, heldur skortur á forgangsröðun, eftirfylgni og samvinnu. Borgarkerfið er orðið flókið, þungt í vöfum og of oft mótað af afmörkuðum áherslum og þröngri hugmyndafræði frekar en heildarhagsmunum og vilja íbúa. Afleiðingin er að jafnvel einföld verkefni festast í ferlum, nefndum og pólitískum skotgröfum. Borgin ætti fyrst og fremst að beina kröftum sínum að því að sinna grunnhlutverki sínu vel. Það þýðir ekki að fyrirætlanir og stefna megi ekki vera metnaðarfull, heldur er það forsenda þess að stefnan verði að raunveruleika. Án trausts rekstrar, ábyrgra fjármála og skýrrar forgangsröðunar verður hvorki svigrúm til umbóta né nýsköpunar í þjónustu borgarinnar. Ég tel að stærsta áskorunin næsta kjörtímabils verði að breyta vinnubrögðum í borgarstjórn. Að færa umræðuna frá hugmyndafræðilegum átökum yfir í lausnir sem þjóna breiðum hópi borgarbúa. Til þess þarf fólk sem er reiðubúið að vinna þvert á flokka, halda fókus þegar á móti blæs og fylgja málum eftir allt til enda. Breytingar verða ekki gerðar með yfirlýsingum einum saman. Þær krefjast þrautseigju og festu, þess að við þorum að velja einfaldar, skynsamar lausnir fram yfir flókin kerfi sem litlu skila. Þar tel ég að Framsókn hafi skýra sérstöðu og þar vil ég leggja mitt af mörkum. Höfundur býður sig fram í 3. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar