Árás á almenningssamgöngur Hannes Pétursson skrifar 4. febrúar 2026 10:03 Strætó stendur nú á krossgötum. Uppfærður samgöngusáttmáli síðustu ríkistjórnar og borgarmeirihluta boðar algjöra útvistun strætisvagnakerfisins á bakvið fögur fyrirheit um bætta þjónustu. Sáttmálinn felur í sér að ríki og borg sjái einungis um skipulags og rekstrarhlið almenningssamgangna í gegnum félagið Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., meðan vagnar og akstursþjónusta Strætó verða endanlega útvistuð til hæstbjóðenda innan þriggja ára. Þessi aðferð er beint upp úr handbók nýfrjálshyggjunnar- almannaþjónustu er fyrst skipt upp í mismunandi einingar og bestu bitarnir einkavæddir. Beinn rekstur sveitarfélaganna á akstri Strætó hefur þegar skroppið saman undir stanslausum ágangi Sjálfstæðismanna í stjórn félagsins og pólitísku viljaleysi borgarmeirihluta Samfylkarinnar og standa nú einungis 43% eftir. Í staðinn hefur stórfyrirtækið Kynnisferðir fengið að taka yfir þorrann af akstrinum með neikvæðum afleiðingum. Byrjunarlaun Vagnstjóra hjá þessum einkafyrirækjum eru þannig um 484.852 krónur sem er rúmlega 50.000 krónum lægri en þess sem keyrir fyrir borgina- umtalsverð fjárhæð á þessum lúsarlaunum. Starf þeirra og og klæðnaður er sá sami, ábyrgðin sú sama — en laun og réttindi allt önnur. Sameyki hefur réttilega fordæmt þessar áætlanir um grímulausa einkavæðingu opinberrar þjónustu sem mun sjá rúmlega 200 félagsmönnum þeirra kastað út í óvissu og lakari launakjör og réttindi. Nú á að ganga enn lengra og gefa einkafyrirtækjum allan reksturinn á akstri Strætó og Borgarlínu sem gefur þeim þar með sterkari samningstöðu til að tryggja sér síaukinn hagnað á ferðum almennings. Sú gróðahugsun sem gegnsýrir nú þegar Strætóþjónustuna sést á því að miðaverð hefur hækkað um nærri 100 krónur umfram verðbólgu á síðustu þremur árum. Þegar þetta skref verður tekið til fulls verður gríðarlega erfitt fyrir borgina að ná aftur stjórn á almenningssamgöngum sínum. Vagnarnir verða allir komnir í einkaeigu og gróðaþörf hluthafa mun vega þyngra heldur en hagsmunir borgarbúa. Reynslan frá nágrannalöndum okkar sýnir að meint skilvirkni útvistunar er tálsýn, sparnaður í byrjun byggist fyrst og fremst á lægri kjörum starfsfólks. Um leið og einn aðili nær ráðandi stöðu skapast hætta á lakari þjónustu og hærri kostnaði. Er trúverðugt að borgin hafi stjórn á einkaaðilum eða mun fúsk í stjórnkerfinu og fákeppni á markaðnum leiða til augljósrar niðurstöðu. Við höfum það í hendi okkar að velja aðra framtíðarsýn – að snúa þessari þróun við og byggja upp skilvirkar almenningssamgöngur fyrir okkur öll. Í komandi sveitastjórnarkosningum gefst borgarbúum tækifæri að velja á milli borgar sem endurheimtir hlutverk sitt sem þjónustugjafa og eiganda innviða eða borg útvistunar sem selur alla sínar eignir og tekjustofna. Ólíkt öðrum flokkum er stefna Sósíalistaflokksins kristaltær í þessum efnum – borgarbúar eiga að eiga sína grunninnviði sjálfir, því aðeins þannig munu almenningssamgöngur verða reknar með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Höfundur er í kosningastjórn Sósíalistaflokks Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar