Hagvöxtur, en fyrir hvern? — Svar við vaxandi hagsældartali án efnahagslegrar sjálfbærni Björgvin Sævarsson skrifar 4. febrúar 2026 07:48 Í síðustu viku las ég grein á Vísi um „mjúka lendingu og aukinn hagvöxt í Bandaríkjunum" og fannst hún kalla á að við spyrjum spurninga sem ekki ættu að gleymast í jákvæðum frásögnum um góðæri. Þessi umfjöllun er ekki hugsuð sem mótsvar, heldur sem framhald og dýpkun á umræðunni sem greinin hóf en þar var sýnt fram á að hagvöxturinn sem spáð er í Bandaríkjunum byggist að mestu á tækniþróun innan afmarkaðs geira (gervigreind), en ekki kerfislegri umbreytingu eða auknum jöfnuði. Fyrir mig bendir þetta til vaxtar sem er knúinn áfram af einangruðum innviðum og aðgengi að auðlindum frekar en heildrænni endurnýjun efnahags- og samfélagskerfa. Þótt lækkandi verðbólga og aukin landsframleiðsla séu teknar sem merki um bata, má spyrja: Hver nýtur þessa bata – og hver stendur enn fyrir utan? -- er ekki kominn tími til að tala um efnahagslega þróun og árangur í samræmi við heilsteyptari skilgreiningu á árangri? Hagvöxtur er ekki sjálfkrafa jákvæður. Hann er einfaldlega mælikvarði á heildarframleiðslu – ekki dreifingu, réttlæti eða sjálfbærni efnahagskerfisins. Í þessu samhengi myndi skilgreiningin á árangri falla í klassíska gildru: hún lítur á hagvöxt sem markmið í sjálfu sér, án þess að spyrja hvort sá vöxtur sé byggður á sjálfbærum grunni – eða hvort hann dýpki það misrétti sem er þegar til staðar í samfélaginu. Hagvöxtur án jöfnuðar er falskur vöxtur Í mörgum efnahagskerfum hefur aukinn hagvöxtur síðustu ára að miklu leyti hagnast efstu tekjuhópum og fjármálakerfinu. Meðaltekjur hafa staðið í stað og stór hluti almennings hefur ekki notið góðs af þeim tölum sem svo oft eru kynntar sem „einkenni bata“. Útkoman í Bandaríkjunum hefur sýnt fram á sífellt minnkandi millistétt og um helmingur Bandaríkjamanna lifir við eða undir lifikostnaði sem kemur seinna fram í efnahagnum undir sífellt hækkandi samfélagslegum kostnaði. Þetta samsvarar því sem má skilgreina sem útdráttarkerfi (extractive system): þar sem auðlindir og afrakstur vinnu eru dregin út úr samfélögum (íbúar og fyrirtæki) án þess að ávinningurinn sé endurvirkjaður eða deilt til baka. Mjúk lending fyrir fjármagn – en harðari lending fyrir fólk? Í greininni er talað um „mjúka lendingu“ í hagkerfinu. En fyrir hvern verður lendingin mjúk? Ef hún felur í sér áframhaldandi niðurskurð í almannaþjónustu, húsnæðisskort eða skert réttindi verkafólks -- eða sveitafélaga -- eða samkeppnishæfni ákveðinna iðnaða – þá er hún ekki mjúk fyrir alla og gríðarleg skuld mun safnast í kjölfarið sem venjulega er ekki tekin með þegar árangur hagkerfa er metinn. Í hringrásarhagkerfinu eru ytri afleiðingar aðgerða teknar með í reikninginn og þar með talið uppsöfnun þessarar skuldar. Þegar ríkishlutverk minnkar og einkaneysla eykst, án þess að enduruppbygging samfélagslegra kerfa fylgi með, erum við ekki að sjá vöxt – heldur vöxt klofnings og viðkvæmni kerfa. Hvað vantar í myndina? Í greininni er ekki minnst á: Aukinn ójöfnuð í dreifingu tekna og eigna Áhrif vaxtarins á náttúru og vistkerfi Hvort vöxturinn byggist á neyslu, skuldsetningu eða tímabundnum bólum Kerfisgreining sem byggist á lögmálum hringrásarhagkerfisins krefst þess að við metum allar stefnur og kerfisbreytingar út frá þremur lykilspurningum: Er vöxturinn byggður á sjálfbærum efnahagslegum gildum– eða á útdrætti? Skilar hann net-jákvæðum áhrifum til samfélags og vistkerfa -- og samkeppnishæfni allra iðnaða? Lokar hann skaðlegum kerfislykkjum – eða dýpkar þær? Í tilfelli Bandaríkjanna eru flestar hagtölur nú um stundir til marks um óhindraðan neysluvöxt, ekki djúpa umbót eða hringrás. Framfarir þurfa kerfislægan grunn Gamaldags skilningur á hagvexti endurspeglar ekki lengur þær áskoranir sem samfélög og vistkerfi standa frammi fyrir. Er þá ekki kominn tími til að hvetja til nýrrar nálgunar á hagvöxt: þar sem vöxtur er aðeins metinn jákvæður ef hann skapar kerfislegan jöfnuð og eignasköpun – þ.e. ef hann umbreytir sögulegum skuldum í eignir, jafnar aðgengi að grundvallarinnviðum, og eykur getu samfélaga til að viðhalda eigin lífsskilyrðum yfir tíma. Þetta þýðir að við þurfum að færa okkur frá flatri landsframleiðslu / GDP-þráhyggju yfir í margþætta velferðarmælikvarða sem endurspegla raunverulegan bata – fyrir fleiri en fáa. Velsældarhagkerfismódelið á Íslandi er góð byrjun í þessari þróun. Því meira sem efnahagskerfið færist í þessa átt minnkar þörfin fyrir vöxt, viðskiptalandslagið verður fyrirsjáanlegra, samkeppnishæfni fyrirtækja verður sterkari og lífsgæði aukast fyrir alla. En við þurfum líka að kunna að ræða og tilkynna árangur og hvað árangur og hagsæld þýðir í raun fyrir alla hagaðila. Af hverju er þetta mikilvægt núna? Yorth Group hefur unnið með og mælt efnahagslega stöðu borga, sveitahéraða, fyrirtækja og samfélaga í Bandaríkjunum og Evrópu og getur með sanni fullyrt að fyrrverandi og núverandi efnahagsstefna Bandaríkjanna sem og annara landa getur skilað sér í efnahagslegu ójafnvægi sem við höfum t.d. nýlega metið í Bandaríkjunum á yfir 2 billjónir dollara árlega. Þetta er upphæðin sem hagkerfið er að missa af vegna gamaldags skilgreiningar á árangri sem t.d. skilar sér í fjárfestingum sem viðhalda úreltu kerfi sem nær ekki lengur að þjóna fyrirtæki, iðnaði og lífsgæði íbúa á nýrri öld. Græn orka, gagnaver og margt annað getur hæglega fallið í þessa gildru ef ekki er rétt að staðið. Beinar og óbeinar afleiðingar þessarar efnahagsþróunar koma oft fram í töpuðum skatttekjum ásamt samfélags- og umhverfislegum kostnaði sem kemur misjafnt niður á stjórnsýslunni, fyrirtækjum og íbúum svo ekki sé minnst á erfiðleikana við að uppfylla einstök markmið eins og kolefnishlutleysi. Hver kannast svo ekki við að þörf fyrir samfélagslega þjónustu fær aldrei næga fjármögnun? Sárið stækkar ár frá ári á meðan fjármagn þverr. Þetta er einn eiginleiki "útdráttar efnahagskerfis" sem er bara hagrænt kerfi sem grefur undan sjálfu sér. Þó svo að Íslendingar búi við velferðarhagkerfi sem á að grípa inn í áður en hlutirnir verða svo slæmir erum við að upplifa marga eiginleika útdráttarhagkerfis og ef ekki er gripið rétt inn í er hætta á að neikvæðar afleiðingar stigvaxi og kostnaðurinn haldi áfram að aukast ár frá ári um ókomna framtíð. Lokaorð: Hagvöxtur í sjálfu sér segir okkur lítið – nema við spyrjum hver nýtur hans og hver greiðir fyrir hann. Mælikvarði á árangur þarf að taka tillit til jafnréttis, náttúru, heilsu og þátttöku. Annars erum við að mæla magn en ekki gæði. Fyrir hönd Yorth Group Björgvin Sævarsson, framkvæmdastjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun