Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 11:30 Poppstjörnurnar úr Tónhyl akademíu eru að leika í væntanlegri kvikmynd sem ber heitið Undir ísnum. Stikla Maron Birnir, Helgi T og fleiri ungar poppstjörnur fara með aðalhlutverk í væntanlegri kvikmynd sem heitir Undir ísnum. Hópurinn hefur undanfarið unnið hörðum höndum að verkefninu og hlakka strákarnir mikið til að athjúpa afraksturinn á hvíta tjaldinu. Þeir frumsýna stiklu fyrir kvikmyndina hér fyrir neðan.
Hér má sjá fyrstu stiklu úr kvikmyndinni Undir ísnum: Klippa: Stikla - Undir ísnum Undir ísnum er fyrsta kvikmyndin sem er framleidd af Tónhyl og er væntanleg í bíó 12. mars næstkomandi. „Hugmyndin af kvikmyndinni kviknaði eftir að tónlistarhópurinn Tónhylur Akademía gerði myndband við lagið sitt Ráðinnn sem var í ákveðnum kvikmyndastíl. Myndin fjallar þó ekki um Tónhyl Akademíu heldur er leikin mynd um vinahóp sem svindlar sér inn í dularfullt verkefni þar sem þeir þurfa að ná í demant á Suðurskautið í gamla sovéska námu. Í fyrstu virðist verkefnið vera einfalt en fljótlega kemur í ljós að það er meira sem býr undir ísnum en einungis demanturinn,“ segir í tilkynningu frá Tónhyl. Hópurinn á bak við myndina samanstendur bæði af fagfólki úr kvikmyndageiranum og fólki sem er að stíga sín fyrstu skref. Myndin var tekin upp síðasta sumar víða um landið. Að sögn strákanna var tökuferlið krefjandi en sömuleiðis lærdómsríkt og mjög skemmtilegt. „Markmiðið með myndinni var bæði að búa til efni fyrir ungt fólk sem mikil vöntun er á og styðja við nýliða í greininni sem hafa áhuga á að starfa við kvikmyndagerð.“ Í aðalhlutverkum eru meðlimir Tónhyl akademíu þeir Helgi Trausti Stefánsson, Kristján Saenz, Maron Birnir Reynisson, Theodór Gísli Sigurgeirsson, Egill Airi, Lindi Banushi, Stefán Logi Hermannsson, Ísak Örn Friðriksson, Ívar Páll Arnarsson og Tryggvi Þór Torfason. Auk þeirra fara Vivian Ólafsdóttir og Þór Tulinius með hlutverk í myndinni. „Kristján Sturla Bjarnason skrifar handritið og leikstýrir en Atli Þór Einarsson sér um tölvubrellur og kvikmyndatöku, Brynjar Ingi Unnsteinsson um hljóð og Guðfinna Birta Valgeirsdóttir er framleiðandi. Myndin er framleidd með Fenrir films,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Tónhyls-stjörnurnar eru samhliða þessu að halda tónleika um næstu helgi í Austurbæ sem seldist upp á tólf tímum. Þá eru þeir í óðaönn að gefa út sóló lögin sín þessa dagana sem njóta mikilla vinsælda og virðist uppbygging hópsins engum takmörkum sett.
Bíó og sjónvarp Tónlist Mest lesið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Lífið One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Tíska og hönnun Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Lífið Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Bíó og sjónvarp Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira