„Við þekkjum umhverfið allavega betur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. febrúar 2026 13:32 Þorleifur Ólafsson stýrir liði Grindavíkur í Smáranum í kvöld. vísir Grindavík mætir Tindastóli í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta í kvöld. Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, býst við erfiðum leik gegn liði með nýjan leikmann en vonar að toppliðið finni taktinn á sínum gamla heimavelli í kvöld. „
Þetta leggst mjög vel í mig. Undirbúningurinn hefur verið frábær og flestar eru klárar, þannig að ég held að þetta muni bara ganga vel hjá okkur“ sagði Þorleifur. Isabella Ósk Sigurðardóttir er að glíma við smávægileg meiðsli en aðrir leikmenn liðsins eru heilir heilsu, að sögn Þorleifs. Óvíst er hvort miðherijnn Isabella Ósk verði með Grindvíkingum í kvöld. Vísir / Pawel Cieslikiewicz Grindavík hefur fagnað góðu gengi í Bónus deildinni á þessu tímabili og situr í efsta sæti deildarinnar, og þó bikarinn sé allt önnur keppni mun það eflaust hjálpa liðinu. „Þetta eru alveg aðskildar keppnir en við höfum verið að bæta okkar leik í deildinni og spiluðum líka nýlega við Tindastól. Lentum í smá brasi þar en náðum að klára þann leik og við munum alveg nýta okkur það, það er klárlega eitthvað sem hjálpar okkur í kvöld“ sagði Þorleifur. Abby Beeman hefur verið frábær fyrir Grindavík og varð nýlega sú fyrsta til að gefa tuttugu stoðsendingar í einum leik. vísir / anton Undanúrslitin og úrslitaleikurinn fer fram í Smáranum, sem var heimavöllur Grindavíkur síðustu tvö tímabil þegar liðið gat ekki spilað í heimabænum. „Skiptir kannski ekki öllu máli hvar maður spilar en okkur leið alltaf vel í Smáranum og vonandi mun það hjálpa. Við þekkjum umhverfið allavega betur en annars staðar.“ Tindastóll tók á móti Grindavík í þarsíðustu umferð Bónus deildarinnar og þar sluppu Grindvíkingar með þriggja stiga sigur eftir háspennuleik. Hvað lærðuð þið af þeim leik? „Hversu öflugt Tindastólsliðið er í raun og veru. Þær eru með hörkulið og eru að breyta um leikmann, þannig að við verðum að vera á tánum og klárar í að byrja mjög vel, það verður mikilvægt fyrir okkur“ sagði Þorleifur að lokum.
VÍS-bikarinn UMF Grindavík Körfubolti Tindastóll Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira