Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Samúel Karl Ólason skrifar 5. febrúar 2026 13:35 Annie, Savannah og Camron Guthrie sendu í gær út skilaboð til mannræningja móður þeirra og báðu um sönnun þess að hún væri á lífi. AP Savannah Guthrie, sjónvarpskona hjá NBC í Bandaríkjunum, gaf í gær út yfirlýsingu þar sem hún bað þann eða þá sem rændu 84 ára gamalli móður hennar á dögunum, um staðfestingu þess að hún væri á lífi. Ekkert svar hefur borist enn.
Nancy Guthrie sást síðast á laugardagskvöld, þegar henni var skutlað heim til sín í Arizona eftir að hafa snætt með fjölskyldumeðlimum sínum. Daginn eftir var hringt á lögregluna eftir að hún mætti ekki í kirkju. Á þriðjudaginn sögðu blaðamenn miðilsins TMZ, sem er þekktur fyrir að segja fréttir af frægu fólki í Bandaríkjunum, og KOLD, sem er héraðsmiðill í Arizona, frá því að þeim hefði borist bréf frá meintum ræningjum Nancy Guthrie, þar sem farið var fram á lausnarfé. TMZ sagði að í bréfinu væri farið fram á milljónir dala í rafmyntum fyrir Nancy Guthrie. Bréfið mun einnig hafa innihaldið lýsingar á skemmdum sem eiga að hafa orðið á heimili Nancy, þegar henni var rænt. Lögreglan hefur þó ekki staðfest að þær lýsingar séu réttar. AP fréttaveitan segir lögregluþjóna hafa fundið vísbendingar um að einhver hafi brotið sér leið inn á heimili Nancy Guthrie og að hún hafi ekki farið þaðan sjálfviljug. Lögreglan hefur gefið til kynna að myndbönd kunni að varpa ljósi á mannránið en þau ummæli hafa ekki verið útskýrð almennilega. Nancy þarf sérstök lyf við háum blóðþrýstingi og getur ekki hreyft sig mikið án aðstoðar. „Við söknum þín“ Savannah Guthrie, ásamt Annie systur sinni og Camron bróður sínum, birtu í gær myndband þar sem Savannah las upp yfirlýsingu. Þar fór hún fram á að ræningjarnir hefðu samband við fjölskylduna og sönnuðu að hún væri á lífi. Hún beindi einnig orðum sínum beint til móður þeirra og sagðist vona að hún heyrði þau. Hún sagði móður sína sterka konu og lýsti henni sem ljúfri og ástríkri konu sem væri fyndin og klár. „Mamma, ef þú ert að hlusta, við þörfnumst þess að þú komir heim. Við söknum þín,“ sagði Annie Guthrie. Myndbandið má sjá hér að neðan.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira