Innlent

Lands­réttur hafnaði líka kröfu um varð­hald yfir konunum

Árni Sæberg skrifar
Konan lést í Vestmannaeyjum í síðustu viku.
Konan lést í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Vísir/Vilhelm

Landsréttur hefur hafnað kröfum Lögreglunnar á Suðurlandi um að tvær konur, sem starfa á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, yrðu hnepptar í gæsluvarðhald. Þær voru handteknar á mánudag í tengslum við rannsókn andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu.

Frá þessu greinir Lögreglan á Suðurlandi á Facebook. 

„Skýrslutökur og rannsóknaraðgerðir hafa farið fram undanfarna daga og niðurstaða Landsréttar í dag er á þá leið að meðal annars með tilliti til þess séu ekki lengur fyrir hendi rannsóknarhagsmunir sem styðja gæsluvarðhald.“

Konan, sem var 97 ára gömul, lést á miðvikudag í síðustu viku en hún hafði þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í aðdraganda andlátsins.

Samkvæmt heimildum fréttastofu grunaði fjölskyldu konunnar ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en lögreglan hafði skyndilega samband um helgina. Útför var áætluð síðar í vikunni en jarðneskar leifar konunnar voru fluttar upp á meginlandið í gær til krufningar.

Rannsókn lögreglu hafi hafist eftir tilkynningu annars starfsmanns Hraunbúða.


Tengdar fréttir

Öðru embætti falið að rannsaka andlátið

Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum.

Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar

Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi, segir enn skýrslutökur vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landsréttur hefur ekki úrskurðað um gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar en farið var fram á gæsluvarðhald tveggja starfsmanna en því hafnað í héraðsdómi.

Rannsókn hófst eftir til­kynningu starfs­manns

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×