„Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. febrúar 2026 11:47 Jakob Sigurðarson vill sjá sína menn mæta Stjörnunni af ákefð. vísir KR og Stjarnan mætast í úrslitaleik bikarkeppni karla í körfubolta nú síðdegis og búast má við hörkuleik milli tveggja heitustu liða Bónus deildarinnar.
KR hefur unnið síðustu fjóra leiki í deildinni og síðustu sex leiki í öllum keppnum. Eina tap liðsins á þessu ári var þann 3. janúar, gegn Stjörnunni sem hefur fagnað sigri í síðustu tíu leikjum í öllum keppnum. „Þetta eru svosem ekkert svakalega ólík lið, bæði lið vilja spila hraðan bolta á háu tempói. Stjarnan er mjög aggressívt lið, mjög orkumikið lið, sem byrjar leikina hratt og reynir að keyra yfir hitt liðið í byrjun. Það er eitthvað sem við verðum að vera tilbúnir í“ sagði Jakob Sigurðarson, þjálfari KR, í samtali við Vísi fyrir leik. KR-ingar styrktu sig í janúar og fengu til sín tvo lettneska leikmenn sem hafa verið að spila vel, bakvörðinn Toms Leimanis og miðherjann Rinalds Malmanis. Fyrir hjá liðinu var hinn lettneski Linards Jaunzems. „Já við fengum inn tvo nýja leikmenn og höfum verið að spila ágætlega frá áramótum. Átt marga góða leiki og svo nokkra sem voru allt í lagi, en við höfum verið að ná í sigra. Mér finnst við vera á réttri leið, liðið í heild sinni og nýju leikmennirnir sem hafa komið vel inn í hópinn.“ Giannis Agravanis, leikmaður Stjörnunnar, kýldi leikmenn Tindastóls í undanúrslitunum. Hann hefur hins vegar ekki verið dæmdur í leikbann því aganefnd KKÍ fundar bara á þriðjudögum. Hvað finnst þér um að Giannis Agravanis sé að fara að spila í kvöld? „Auðvitað hef ég mína skoðun, en ég hef ekkert rætt þetta við liðið mitt og er bara búinn að ákveða að ræða þetta ekkert fyrir leik. Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn, svo get ég rætt þetta meira eftir leikinn.“ Yrði samt ekki extra sárt að sjá hann setja sigurkörfuna? „Það væri bara súrt að sjá einhvern í hinu liðinu setja sigurkörfuna á okkur“ sagði Jakob léttur. „En hann er klárlega góður leikmaður sem hjálpar þeim, en það er ekki þetta sem er aðalmálið. Allt Stjörnuliðið er gríðarlega vel mannað þannig að við þurfum bara að einbeita okkur að því að ná upp góðri frammistöðu hjá okkur.“
VÍS-bikarinn Stjarnan KR Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira