„Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. febrúar 2026 12:03 Konráð Guðjónsson er hugsi yfir verðbólgumarkmiðinu miðað við aðstæður og aðgerðir á Íslandi. Sérfræðingar segjast velta því fyrir sér hvort 2,5 prósenta verðbólgumarkmið íslenskra stjórnvalda sé annað en óskhyggja miðað við aðgerðir þeirra og aðstæður í íslensku efnahagslífi. Markmiðinu hafi einungis einu sinni verið náð og spurning hvort Íslendingar þurfi að fara að endurskilgreina markmiðið. Þeir benda á að meðal þess sem hægt væri að gera til að bregðast við verðbólgunni væri að lækka skatta á matvæli.
Þetta er meðal þess sem kom fram í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þeir Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa dósent í viðskiptafræði við HÍ stöðuna í efnahagsmálum hér á landi á tímum fimm prósenta verðbólgu. Hægt að benda nánast hvert sem er „Við erum búin að vera í fimm ár í þessu ástandi, að reyna að ná þessu niður. Mér persónulega hefur aldrei fundist það vera í augsýn því ég bara hreinlega velti því upp hvort við sem þjóð séum tilbúin að vera á verðbólgumarkmiði þó við séum búin að reyna það núna í aldarfjórðung,“ segir Konráð. Hann bendir á að það hafi einungis tekist einu sinni og þá við heppilegar aðstæður. Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi velti því upp í þættinum hverjar væntingar efnahagslífsins í heild væru. Líklega myndu ekki margir finnast í dag sem teldu að 2,5 prósenta verðbólgumarkmið væri líklegt? „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta. Og það er hægt að benda nánast hvert sem er,“ svarar Konráð. „Vinnumarkaðurinn þar eru laun alltaf að hækka of mikið, Seðlabankinn í baksýnisspeglinum var hann allt of seinn að hækka vexti og var með alltof lága lengi, það má nánast færa rök fyrir því að hann, hann er á verðbólgumarkmiði, hann er ekki á hagvaxtamarkmiði, miðað við það - ef hann er óánægður með verðbólguþróunina þá hefði hann í raun og veru átt að hækka vexti síðast þannig það má alveg segja að hann sé ekki að gera nóg til að halda aftur af verðbólgunni. Svo getum við litið líka á ríkisfjármálin sem skipta gríðarlega miklu máli en eru reyndar svolítið ofmetin í umræðunni en gott og vel. Ég meina það er ekkert aðhald til að tala um á ríkissjóði í ár í raun og veru. Það var í raun og veru meiri útgjaldavöxtur heldur en áður hafði verið gert ráð fyrir og svo framvegis og svo framvegis.“ Hægt að lækka álögur á matvæli Már Wolfang Mixa segist taka undir orð Konráðs að mestu leyti. Krónískt hátt verðbólgustig sé veruleiki hér á landi og þrátt fyrir tal um beitingu sleggju hafi ekkert gerst í þessum efnum. Seðlabankinn sé eini aðilinn sem berjist við að ná verðbólgunni niður og verði raunvaxtastigið áfram geypilega hátt og samdráttur verði þar sem fyrirtæki og heimili skuldsetji sig mikið sé hætt við því að að samdrátturinn verði erfiðari og verri. „Maður veltir því fyrir sér hvort það væri hugsanlega hægt, eins og er verið að gera á hinum Norðurlöndunum, að lækka skatta á meðal annars matvæli og að mínu mati væri það augljós leið til að bæta hag heimilanna og til að ná verðbólgudraugnum eitthvað niður og þetta endurspeglast þá auðvitað líka í mikilvægi þess að fólk geti tekið verðtryggð lán,“ segir Már. „Því þegar verðbólga er svona viðvarandi, hún er hér núna rúmlega fimm prósent, hún er rétt fyrir ofan núllið í Svíþjóð og einhvers staðar í kringum eitt og hálft, tvö prósent í Danmörku sem dæmi, að þegar verðbólga er svona há er fyrir langflest heimili vonlaust að taka óverðtryggð lán. Bara sem dæmi ef þú ert að kaupa hundrað milljóna króna íbúð í dag þá ert þú á ári ef þú tekur óverðtryggt lán að því gefnu að íbúðaverð og almenn verðbólga hækki í svipuðum takti, þá ertu að greiða fimm milljónir á ári bara í að dekka verðbólguna, sem er hvað rúmlega 400 þúsund kall á mánuði og flest íslensk heimili ráða ekkert við slíkt og greiða sér raunvaxtastig oná það. Þannig þessi háa króníska verðbólga hún litast í öllu samfélaginu.“ Spurning hvort Íslendingar séu verðbólguþjóð Már bendir á í Sprengisandi að ýmsar launahækkanir hafi orðið í kringum þrjú og hálft og fjögur prósent með þá óskhyggju í huga að þessu 2,5 prósenta markmiði yrði náð og þar með raunlaunahækkun. „Ef verðbólga helst í fimm prósentum, þá augljóslega eru þá laun að raunvirði að dragast saman. Ég bara tek undir þetta aftur með það sem Konráð segir. Það er eins og þetta sé einhver ákveðin óskhyggja 2,5 prósent að þessu markmiði verði náð,“ segir Már. „Þetta var skiljanlegt í kjölfar Covids þegar verðbólga hér og annars staðar rauk upp úr öllu valdi en hún hefur dregist saman hratt á öllum öðrum stöðum nánast nema á Íslandi og því fer maður einmitt að velta fyrir sér: Er þetta raunhæft markmið og er þetta markmið sem íslenska þjóðin geti sæst á að sé bara ekki raunsætt? Að við getum kannski bara farið að skilgreina okkur sem fimm prósenta verðbólguþjóð, hvað veit ég?“
Efnahagsmál Fjármál heimilisins Seðlabankinn Sprengisandur Verðlag Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira