Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Stefán Árni Pálsson skrifar 10. febrúar 2026 15:01 Ína og Elvar hafa verið saman í tólf ár og eiga saman einn sex ára dreng. Í dag búa þau í Póllandi. Körfubolti stjórnar lífi ungra hjóna úr Njarðvík sem hafa búið sundur og saman á 11 stöðum utan Íslands í þeirra 12-13 ára sambandi. Í vetur deila þau Elvar Már Friðriksson, Ína María Einarsdóttir og sex ára sonur þeirra Erik Marel Elvarsson lífi sínu á milli Njarðvíkur þar sem þau hafa nýverið reist sér myndarlegt hús og Wloclawek í Póllandi þar sem Elvar spilar körfubolta í atvinnumennsku í vetur. „
Þannig er bara vinnuumhverfið hjá mér. Þetta eru vanalega stuttir samningar, þannig að við höfum tekið bara 10 mánuði í senn á hverjum stað - og hún bara fylgir mér,“ segir hann og þau hlæja í spjalli við Lóu Pind Aldísardóttur en þau Ívar Kristján Ívarsson myndatökumaður heimsóttu Elvar og Ínu til Póllands í vetur fyrir fjórða þátt af þáttaröðinni Hvar er best að búa? „Stundum brotnar maður alveg niður og líður illa. Þetta eru svona highs and lows. Og svo annan daginn er maður bara svo þakklátur fyrir þetta ævintýri. Þetta er allur skalinn,“ segir Ína sem dvelur að mestu í Njarðvík í vetur enda var sonur þeirra að hefja sína skólagöngu þar í haust. „Maður verður svolítið háður ævintýrinu þó að það séu margir kostir og gallar. Mér finnst rosalega gott að eiga Ísland og svo ævintýrið“. Í myndbandinu sem hér fylgir má sjá brot úr þættinum sem fór inn á streymiveituna Sýn+ um helgina og verður seinna sýndur í línulegri dagskrá á Sýn. Klippa: Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Í þáttaröðinni heimsækir Lóa alls konar fólk, m.a. íslenskar konur sem féllu fyrir ítölsku eyjalífi, unga frumkvöðla sem ákváðu að setjast að nálægt alþjóðaflugvöllum til að auðvelda ferðalög milli heimsálfa, kjarnafjölskyldu úr Hafnarfirði sem hafnaði íslenska lánakerfinu og eiga nú skuldlaust hús í spænskri sveit, ungri konu sem stofnaði kökufyrirtæki í Köben og konu á miðjum aldri sem fann ástina í örmum Spánverja á Djúpavogi sem leiddi þau til Andalúsíu þar sem við fylgjumst með brúðkaupi þeirra. Og loks kynnumst við hjónum á besta aldri sem höfðu kjark til að setjast að í alræmdri stórborg í Nígeríu umkringd vopnuðum öryggisvörðum. Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumenn eru aðallega Ívar Kristján Ívarsson og Hákon Pálsson, klippingu annaðist Magnús Ingvar Bjarnason. Framleitt af Lóu Production fyrir Sýn.
Hvar er best að búa? Íslendingar erlendis Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Fleiri fréttir Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Sjá meira