Þegar rétturinn og réttvísin horfa undan Vigfús Eysteinsson skrifar 10. febrúar 2026 19:33 Ég hef beðið lengi. Ekki vegna þess að ég hafi sætt mig við það sem gerðist, heldur vegna þess að ég hafði hvorki styrk né aðstæður til að berjast á sínum tíma. Nú er tími til kominn að segja frá, - ekki af hefnd, heldur af nauðsyn. Ég erfði jörð afa míns, Sætún. Hún var ekki bara fasteign; hún var hluti af uppruna mínum, sjálfsmynd og framtíð. Nokkrum árum síðar komst ég að því að hún hafði verið seld án míns samþykkis, á verði sem nam broti af raunverulegu matsverði hennar. Salan byggðist á meintu umboði, sem ég hafði aldrei gefið og “kaupandinn” lét þinglýsa. Það sem gerir þetta mál ekki aðeins sárt, heldur líka grafalvarlegt, er hverjir stóðu að verkinu, og hvernig. Ég hafði gengist undir formlega greiningu þar sem fram kom að ég ætti erfitt með skynjun flókinna gagna og úrvinnslu þeirra þ.e. - erfitt með að skilja tölur og hugtök sem tengdust viðskiptum, - erfitt með að skilja samningsskjöl, og ekki síst: erfitt með að verja málstað minn í félegslegum og valdaháðum aðstæðum. Sá sem fór með mig í greininguna var faðir minn. Hann vissi!. Sami maður og maki hans notuðu svo vitneskjuna og greiningu mína markvisst til að fara með „fullt og ótakmarkað umboð“ í mínu nafni. Umboð sem ég og frændi minn, sem átti að hafa kvittað undir sem vottur, könnumst ekkert við. Umboð sem veitti heimild til að selja jörðina, skrifa undir afsal og taka við greiðslum. Ég var settur til hliðar. Eign mín fór. Ég stóð eftir. Þegar ég reyndi að mótmæla var mér ekki mætt með svörum, heldur með þögn, þrýstingi og hótunum. Mér var gert ljóst – beint og óbeint – að það væri skynsamlegra að halda kyrru fyrir. Ég gerði það of lengi. Þetta er ekki einfalt fjölskyldudeilumál. Þetta er ekki „gamalt mál“ sem má sópa undir teppið með vísan til fyrningar. Þetta er misneyting. Þetta er skjalafals. Þetta er auðgun á kostnað óreynds, ungs einstaklings í veikri stöðu. Þessi atriði voru beinlínis hluti af forsendum og útfærslu brotsins, sem svo gerðu vont verra hvað varðar líðan mína og fjárhaglega stöðu. Í íslensku samfélagi höfum við skuldbundið okkur, - bæði með lögum og alþjóðlegum samningum, til að vernda fólk sem höllum fæti stendur, gegn misneytingu. Það á ekki að vera þannig að svona brot eða samskonar brot verði slíkum einstaklingum óviðráðanleg vegna þess að þeir höfðu ekki burði til að bregðast við strax. Ég er ekki að óska eftir sérmeðferð. Ég er að krefjast þess sem á að vera sjálfsagt: Að málið verði skoðað af hlutleysi, fagmennsku og með hliðsjón af þeirri stöðu sem ég var í þegar brotið var framið. Þögn mín var ekki samþykki. Tíminn sem leið var ekki gleymska. Réttlætið á ekki að fyrnast þegar brotaþoli hafði aldrei raunverulegt færi á að verja sig. Ég skrifa þetta ekki bara fyrir sjálfan mig. Ég skrifa þetta einnig fyrir þau sem sitja enn í þögninni – vegna þess að kerfið er flókið, valdið ósýnilegt og andstæðingurinn oftar en ekki of nálægur. Það er hlutverk réttarríkis að sjá þau sem veikast standa og að sjá til þess að á þeim sé ekki brotið. Hafi verið á þeim brotið er einnig hlutverk réttarríkis að leiðrétta hluti og draga gerendur til ábyrgðar. Margt þokast í rétta átt í þeim efnum en eftir stendur að sjá hvort hugur yfirvalda fylgi máli þeirra. Allavega: Nú er tími til að stíga fram og segja frá. (Ritað 31. jan. 2026) Höfundur er garðyrkjufræðingur (og fyrrverandi landeigandi) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun