Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 11. febrúar 2026 20:24 Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að henni líði ekki vel með stöðu spítalans. Vísir/Anton Brink Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks.
Alma segir ríkisstjórnina með margs konar áætlanir yfir Landspítalann og bráðamóttökuna á sínum prjónum. Á næstu dögum opni 17 ný hjúkrunarrými og 28 dagdvalarrými. Í maí eða júní bætist svo við 100 rými í Urðarhvarfi og það sé verið að skoða að opna hluta þeirra fyrr. Stefnt sé að því að á næsta ári verði rýmin orðin 270. Alma brást við stöðunni á bráðamóttökunni í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Hún segir vanda bráðamóttökunnar tvíþættan, annars vegar sé allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma síðustu ár. „Við sendum út neyðarkall fyrir minna en viku og í kjölfar þess getum við opnað, eða lagt í 17 hjúkrunarrými, og það opna 28 ný dagdvalarrými. Þannig það er auðvitað margt í gangi og þar að auki, eins og fram kom, er verið að gera allt sem hægt er til að efla heimahjúkrun og heimaþjónustu. Svo er líka verið að tala um heimaspítala.“ Hitt vandamálið er að sögn Ölmu húsnæði spítalans sem sé löngu sprungið. Borgarspítalinn hafi opnað 1969 og frá þeim tíma hafi íbúum fjölgað úr 203 þúsund í 400 þúsund og ferðamönnum fjölgað úr 50 þúsund í 2,3 milljónir. „Þannig við erum allt of sein að byggja nýjan spítala og margt af því sem nefnt er leysist ekki fyrr en á nýrri bráðamóttöku, en það er verið að byggja við bráðamóttökuna.“ Staðan óboðleg að hennar mati 2018 Alma segir að núna liggi mest á að fækka sjúklingum og flytja þá sem hafi lokið meðferð á spítalanum annað. Hún segir annað til skoðunar auk þess sem sé ekki tímabært að fjalla um. „Mér líður auðvitað ekki vel yfir þessu en ég er búin að fylgjast með þessu í mjög mörg ár og það hefur auðvitað verið að versna smám saman. Ég fór þarna inn sem landlæknir 2018 og þá var staðan óboðleg. En svo kemur alltaf dropinn sem fyllir mælinn,“ segir Alma og að henni heyrist hann kominn núna. Spurð hvenær vandinn leysist segir Alma að á næstu dögum losni 17 hjúkrunarrými og svo eigi hún von á því að þau 28 dagdvalarrými sem hún nefndi muni hjálpa til. Plássin í Urðarhvarfi séu svo á áætlun í maí og júní. „En við erum með til skoðunar að flýta að opna hluta þeirra rýma mun frekar en ég er eldri en tvævetur og þori ekki að lofa neinum dagsetningum, en ég get sagt að í heilbrigðisráðuneytinu heyrum við þetta ákall og erum að gera allt sem í mannlegum mætti stendur.“ Birti til á næsta ári Alma segir að við árslok verði staðan orðin allt önnur en það muni taka mörg ár að komast í kapp varðandi þann skort á hjúkrunarrýmum sem sé til staðar. Það bíði 700 karlar og konur eftir hjúkrunarrýmum, 500 á biðlista og 200 í biðrýmum. Við þetta bætast um 100 á hverju ári. „Við vitum öll að það eru engar patent lausnir, þá væri staðan ekki svona. Þetta er allt þungt í vöfum en það vinnur sannarlega með okkur að við erum að fara að opna nýtt hjúkrunarheimili, við erum að byggja við bráðamóttökuna, og síðan birtir til á næsta ári með þessum 270 nýju rýmum. Það tekur líka tíma að byggja hjúkrunarheimili en þessi ríkisstjórn hefur blásið til stórsóknar þar.“
Landspítalinn Hjúkrunarheimili Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Eldri borgarar Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira