Hættum þessu hálfkáki Margrét Kristmannsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 13:16 Ég hef verið stjórnandi í íslensku atvinnulífi í rúma þrjá áratugi og lengst af þessum tíma hefur verið þráttað um Evrópusambandið - með einstaka hléum inn á milli. Sumir sjá Evrópusambandið sem lausn allra mála á meðan aðrir finna því flest til foráttu og eru þessir jaðrar oft háværir í umræðunni og einoka hana lengstum. Staðreyndin er að flest erum við sennilega stödd þarna mitt á milli - hljóður meirihluti sem telur að sennilega geti Evrópusambandið lagt margt gott til þó ekki sé það fullkomið frekar en önnur mannanna verk. En það er talinn kostur hjá góðum stjórnendum að útiloka aldrei fyrirfram neinn valkost - fá allar staðreyndir upp á borð og velja síðan besta kostinn. En þetta hefur íslensku atvinnulífi mistekist undanfarna áratugi. Við höldum bara áfram að vera með vangaveltur í stað þess að taka upplýsta ákvörðun byggða á staðreyndum. Haustið 2013 vorum við hins vegar á góðri leið þegar fram kom sameiginleg yfirlýsing frá Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði að æskilegt væri að aðildarviðræður við ESB yrðu kláraðar og að besti fáanlegi samningur um aðild yrði borinn upp í þjóðaratkvæðagreiðslu. Af þessu varð þó aldrei enda hefur pólitískur ómöguleiki oft komið í veg fyrir að íslenska þjóðin fái að taka upplýsta ákvörðun um eigin hag. Mér er hins vegar ómögulegt að sjá áhættuna af aðildarviðræðum! Teljum við að það sé okkur til hagsbóta að halda áfram eilífum vangaveltum og þrasi um Evrópusambandið - láta einhverja aðra segja okkur sýknt og heilagt hvað muni eða muni ekki koma fram í samningnum? Ef við fáum lélegan samninga og metum að okkur sé betur borgið utan ESB þá einfaldlega höfnum við samningnum. Norðmenn hafa tvívegis gert akkúrat það - fellt samning við ESB árin 1972 og 1994 en öfugt við okkur gátu Norðmenn tekið upplýsta ákvörðun á meðan við erum enn í skotgröfum með og á móti Hættum þessu hálfkáki - fáum að sjá staðreyndir - kjósum svo með eða á móti - og höldum áfram. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Margrét Kristmannsdóttir Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal Skoðun Halldór 06.06.26. Halldór Skoðun Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson skrifar Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Sjá meira
Ég hef verið stjórnandi í íslensku atvinnulífi í rúma þrjá áratugi og lengst af þessum tíma hefur verið þráttað um Evrópusambandið - með einstaka hléum inn á milli. Sumir sjá Evrópusambandið sem lausn allra mála á meðan aðrir finna því flest til foráttu og eru þessir jaðrar oft háværir í umræðunni og einoka hana lengstum. Staðreyndin er að flest erum við sennilega stödd þarna mitt á milli - hljóður meirihluti sem telur að sennilega geti Evrópusambandið lagt margt gott til þó ekki sé það fullkomið frekar en önnur mannanna verk. En það er talinn kostur hjá góðum stjórnendum að útiloka aldrei fyrirfram neinn valkost - fá allar staðreyndir upp á borð og velja síðan besta kostinn. En þetta hefur íslensku atvinnulífi mistekist undanfarna áratugi. Við höldum bara áfram að vera með vangaveltur í stað þess að taka upplýsta ákvörðun byggða á staðreyndum. Haustið 2013 vorum við hins vegar á góðri leið þegar fram kom sameiginleg yfirlýsing frá Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði að æskilegt væri að aðildarviðræður við ESB yrðu kláraðar og að besti fáanlegi samningur um aðild yrði borinn upp í þjóðaratkvæðagreiðslu. Af þessu varð þó aldrei enda hefur pólitískur ómöguleiki oft komið í veg fyrir að íslenska þjóðin fái að taka upplýsta ákvörðun um eigin hag. Mér er hins vegar ómögulegt að sjá áhættuna af aðildarviðræðum! Teljum við að það sé okkur til hagsbóta að halda áfram eilífum vangaveltum og þrasi um Evrópusambandið - láta einhverja aðra segja okkur sýknt og heilagt hvað muni eða muni ekki koma fram í samningnum? Ef við fáum lélegan samninga og metum að okkur sé betur borgið utan ESB þá einfaldlega höfnum við samningnum. Norðmenn hafa tvívegis gert akkúrat það - fellt samning við ESB árin 1972 og 1994 en öfugt við okkur gátu Norðmenn tekið upplýsta ákvörðun á meðan við erum enn í skotgröfum með og á móti Hættum þessu hálfkáki - fáum að sjá staðreyndir - kjósum svo með eða á móti - og höldum áfram. Höfundur er framkvæmdastjóri.
Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar