ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 20:00 Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs SA g Finnbjörn A. Hermannsson formaður ASÍ. Vísir Binding bótagreiðslna við launavísitölu er óráðleg og ótímabær að mati Alþýðusambands Íslands. Samtök atvinnulífsins telja breytinguna geta leitt til þess að bætur hækki hraðar en laun. Gera má ráð fyrir verðbólguþrýstingi og milljarða útgjaldaaukningu samkvæmt greinargerð með frumvarpi um málið.
Á næstunni liggur fyrir að örorku-og ellilífeyrisbætur verða tengdar við launavísitölu í stað launaþróunar samkvæmt stjórnarfrumvarpi um almannatryggingar. Harðar deilur urðu á Alþingi um málið í vikunni þegar annarri umræðu um frumvarpið lauk. Milljarða aukakostnaður Í greinargerð með frumvarpinu kemur m.a. fram að kostnaðarauki ríkissjóðs vegna breytinga sem það feli í sér gæti orðið að meðaltali frá þremur til fjögurra milljarða króna verði hann í samræmi við launaþróun síðustu ára. Þá kemur fram að verðbólguþrýstingur muni aukast því um 60 þúsund manns fái hærri bætur. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs SA, varar stjórnvöld við að lögfesta breytingarnar. „Ég hef velt fyrir mér hvort þau hafi ekki áttað sig á hvaða afleiðingar þetta mun hafa að lögfesta breytingarnar þegar lagt var upp í þessa vegferð. En nú hafa birst fjölmörg varnaðarorð sem þau hafa ákveðið að hlusta ekki á og við teljum það mjög alvarlegt,“ segir Anna Hrefna. SA segja jafnframt að gögn fjármálaráðuneytisins sýni að örorku- og ellilífeyrisbætur hafi hækkað umfram launavísitölu og verðbólgu. Öryrkjabandalagið heldur á móti fram að lífeyrir almannatrygginga hafi dregist verulega aftur úr launaþróun og tekur breytingunni fagnandi. „Þessi kjaragliðnun sem nú er verið að ræða við sjáum hana ekki birtast í gögnunum. Þessi þróun vekur líka upp þá spurningar, ef bætur hafa verið að þróast umfram laun, af hverju er verið að gera þessar breytingar núna? Þetta frumvarp tryggir í raun að bætur muni hækka umfram laun til lengri tíma litið,“ segir Anna Hrefna. Umfangsmiklar breytingar voru gerðar á örorku og endurhæfingarkerfinu síðasta haust og þá hækkuðu bætur flestra bótaþega. Forseti ASÍ segir að það þurfi að meta áhrif þeirra og örorkukerfið í heild áður en meira sé gert. Þá sé örorkubótakerfið í heild í endurskoðun. „Við teljum að peningunum sé betur varið með því að horfa til þeirra sem raunverulega eru fátækir í þessum hóp og reyna að koma til móts við þá hópa en ekki að smyrja þetta yfir alla hópa. Við teljum að svona átómatískar leiðir séu ekki réttar. Þá erum við ekki annarrar skoðunar gagnvart öryrkjum heldur en embættismönnum ríkisins,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ. Breytingin er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en Flokkur fólksins setti málið á oddinn. Telurðu að þarna sé um pólitísk hrossakaup að ræða milli flokkanna? „Það er ekkert ólíklegt,“ segir Finnbjörn. Fjallað var um málið í sjónvarpsfréttum Sýnar.
Tryggingar Félagsmál Stéttarfélög Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ASÍ Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Fleiri fréttir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Sjá meira