Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júlí 2026 17:08 Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna, segir Evrópusambandið enga töfralausn en sambandið sé verkfæri til þess að ná efnahagslegum stöðugleika. Facebook Efnahagsstöðugleiki og upptaka evrunnar heilla formann Ungra Evrópusinna við aðild að ESB en hann líti á krónuna sem „misheppnaða tilraun.“ Ungt fólk víða um heim glími við atvinnuleysi og það sé ekki evrópskt vandamál.
Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna, segir enga forsendu fyrir því að atvinnuleysi ungs fólks flytjist til Íslands frá Evrópu með aðild Íslands að Evrópusambandinu einni. Hann segir mikla samkeppni um atvinnu víða um heim sem bitni fyrst og fremst á ungu fólki. „Atvinnuleysi meðal ungs fólks er líka hærra á Íslandi miðað við restina af þjóðinni þannig þetta er ekkert bara evrópskt vandamál. Það er bara vandamál alls staðar að ungt fólk sé ekki jafn mikið inni á atvinnumarkaði,“ segir Óðinn en hann var til viðtals í Bítinu í morgun. Hann segir Evrópusambandið vissulega enga töfralausn en sambandið sé verkfæri til þess að ná efnahagslegum stöðugleika. Hann vilji þó ekki skrifa ganga í ESB sama hvað. „Ég vil halda stjórn á okkar fiskimiðum og þá sérstaklega bara fá að ákveða kvótann sjálf. Við höfum náttúrulega mestu reynsluna af því að stjórna okkar kvóta, þannig að ég vil fá að sjá lausn á því.“ Mikilvægasta málið sé að sjá samninginn og taka upplýsta ákvörðun. Kostnað við atkvæðagreiðslur og samningsviðræður sjái hann ekki sem gild rök gegn viðræðum. Hann segir að skoða þurfi samkeppnishæfi aðildarríkja eins og sér í stað Evrópusambandsins sem heildar. Þar séu mörg lönd sem standi Íslandi framar. Hann nefnir Þýskaland, Holland og Danmörku og segir þetta spurningu „um það hvort við viljum þróast með Evrópu eða hvort við viljum sitja eftir.“ Ísland sé sjálfstæð og fullvalda þjóð, ekki þrátt fyrir það alþjóðasamstarf sem við tökum þátt í, heldur þökk sé því. Aðild að Evrópusambandinu sé gott skref í áttina að því að bæta kjör Íslendinga og fullveldið. Segir engan möguleika á herskyldu Aðspurður hvort hann hafi áhyggjur af herskyldu ef yrði af aðild Íslands að Evrópusambandinu svarar hann neitandi. „Ef ég svara þessu í stuttu máli þá hef ég engar áhyggjur af því. Evrópusambandið er fyrst og fremst efnahagssamband. Ég sé engin rök fyrir því og það eru engar lagagerðir innan Evrópusambandsins sem gefa það til kynna að evrópskur her verði einhver raunveruleiki. Til dæmis ef við tökum Austurríki sem dæmi þá fer þetta beint gegn sko stjórnarskrá ríkisins. Þannig að ég sé það bara ekki sem pólitískan möguleika að þetta verði nokkurn tímann raunverulegt.“
Bítið Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira