Valhöll seld en óvíst með framhaldið Árni Sæberg skrifar 13. febrúar 2026 11:15 Valhöll var reist árið 1975 og hefur alla tíð hýst Sjálfstæðisflokkinn. Vísir/Einar Alva capital og Sjálfstæðisflokkurinn hafa undirritað kaupsamning um fasteignina að Háaleitisbraut 1, betur þekkt sem Valhöll. Að svo stöddu liggur endanleg ákvörðun um hvaða starfsemi verður rekin í Valhöll ekki fyrir.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Alva capital en greint var frá því í síðustu viku að samningaviðræður um kaupin væru á lokametrunum. Hús með töluverða arfleifð Í tilkynningu segir að húsið hafi um áratugaskeið verið eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og hafi lengst af verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Valhöll sé hús með töluverða arfleifð og sterka stöðu í borgarmyndinni. Með tilkomu Alva capital hefjist nýr kafli í sögu hússins þar sem áhersla verði lögð á að virða sögu þess og sérstöðu „Við lítum á Valhöll sem einstaka byggingu með ríka menningarlega arfleið í sögu landsins. Það er okkur mikilvægt að standa vörð og virðingu um húsið og halda í þá ímynd sem það hefur skapað sér í gegnum tíðina,“ er haft eftir Skorra Rafni Rafnssyni, forstjóra og eiganda Alva capital. Kemur í ljós hvað verður í húsinu Á næstu misserum muni Alva capital vinna að þróun nýrrar starfsemi í húsinu. Stefnt sé að því að breyta hlutverki þess á þann hátt að það verði lifandi hluti af nærumhverfi hússins. Skorri Rafn Rafnsson er stofnandi og forstjóri Alva capital. Alva capital „Þetta er spennandi og krefjandi verkefni. Við lítum á þetta sem langtímafjárfestingu og það verður spennandi verkefni að endurskapa nýja lífdaga í Valhöll án þess að raska þeim sögulega og menningarlega grunni sem húsið stendur á. Endanleg ákvörðun um hvaða starfsemi muni verða í Valhöll í framtíðinni liggur ekki fyrir á þessu stigi en við munum kynna það þegar niðurstaða er komin, sem ætti að vera innan tíðar,“ er haft eftir Skorra Rafni. Líkt og fjallað var um síðustu viku hefur skipulagsfulltrúi tekið jákvætt í fyrirspurn Alva fasteigna ehf., dótturfélags Alva capital, um möguleikann á hótelrekstri í Valhöll. Bygging annarrar hæðar ofan á húsið var hins vegar útilokuð.
Sjálfstæðisflokkurinn Fasteignamarkaður Reykjavík Hús og heimili Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira