Tudor tekur við Tottenham Sindri Sverrisson skrifar 13. febrúar 2026 14:07 Igor Tudor stýrði síðast liði Juventus. Getty/Elianton Tottenham Hotspur hefur fundið stjóra til að taka við af Thomas Frank sem var rekinn í þessari viku.
Hinn 47 ára gamli Króati Igor Tudor tekur við Tottenham en það er þó aðeins til bráðabirgða, að minnsta kosti til að byrja með. Frá þessu greindi íþróttafréttamaðurinn virti David Ornstein í The Athletic í dag. 🚨 Tottenham Hotspur reach verbal agreement with Igor Tudor to become interim head coach. 47yo Croatian set to join #THFC on contract to end of season; no permanent option. Arrives with big-club experience. Process led by Venkatesham & Lange @TheAthleticFC https://t.co/mhne30c4jU— David Ornstein (@David_Ornstein) February 13, 2026 Samningur Tudors gildir til loka þessarar leiktíðar og er ekki með neinni klásúlu um að hann verði í framhaldinu stjóri Tottenham til frambúðar. Tudor stýrði síðast liði Juventus, þar sem hann gerði garðinn frægan sem leikmaður á sínum tíma, en var rekinn þaðan í október, eftir rétt rúmlega hálft ár í starfi. Áður stýrði hann Lazio, Hellas Verona og Udinese einnig á Ítalíu, með viðkomu hjá Marseille 2022-23, en staldraði hvergi lengi við. Tudor tekur við Tottenham í afar krefjandi stöðu í ensku úrvalsdeildinni, í 16. sæti og aðeins fimm stigum fyrir ofan West Ham sem er í fallsæti en hefur verið á talsvert miklu flugi. Tottenham er hins vegar einnig komið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Fyrsti leikur Tottenham undir stjórn Króatans verður ekki fyrr en 22. febrúar en það verður sannkallaður stórleikur við erkifjendurna í Arsenal. Leikið er í enska bikarnum um helgina og þar féll Tottenham út gegn Aston Villa strax í 3. umferð.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira