Algjör samstaða sé um að hækka bætur Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 20:00 Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja algjöra samstöðu í ríkisstjórn um að tengja bætur við launavísitölu. Vísir/Hjalti Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi líka við um aðrar launahækkanir.
Binding bótagreiðslna við launavísitölu er óráðleg og ótímabær að mati Alþýðusambands Íslands. Samtök atvinnulífsins telja breytinguna geta leitt til þess að bætur hækki hraðar en laun. Þetta er meðal gagnrýni sem hefur komið fram vegna stjórnarfrumvarps þar sem breytingin kemur fram. Þá kemur fram í greinargerð með frumvarpinu að gera megi ráð fyrir verðbólguþrýstingi og milljarða útgjaldaaukningu við lögfestingu ákvæðisins. Vísar gagnrýni á bug Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kveður gagnrýnina í kútinn. Breytingin sé gerð til að koma í veg fyrir kjaragliðnun milli bóta öryrkja- og ellilífeyrisþega og lægstu launa í gegnum tíðina. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. „Við erum að taka á því að ákveðnir hópar samfélagsins sitji alltaf eftir og séu svo leiðréttir í átaki inn á milli. Þá koma sveiflur inn í kerfið. Auðvitað geta svona hækkanir skapað verðbólguþrýsting eins og aðrar launahækkanir. Það er hins vegar ekki rétt sem hefur verið haldið fram að það sé einhvers konar tvöfaldur lás í gangi með boðuðum breytingum,“ segir Kristrún. Fram hefur komið að málið lykti af pólitískum hrossakaupum en Flokkur fólksins setti málið á oddinn fyrir síðustu alþingiskosningar. Kristrún segir að það eigi einnig við um Samfylkinguna. „Ríkisstjórnin er einhuga um þetta mál. Í öðru lagi, þú ert að tala við formann jafnaðarmannaflokks sem var með þetta mál á stefnuskrá í aðdraganda kosninga og í framhaldi af þeim eða að lífeyrir skuli fylgja launaþróun,“ segir Kristrún. Ætla að leiðrétta muninn Samtök atvinnulífsins hafa bent á að samkvæmt gögnum fjármálaráðuneytisins hafi ekki orðið kjaragliðnun milli bóta og launa síðustu ár heldur þvert á móti. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að gliðnunin hafi verið mikil eftir efnahagshrunið sem hafi gert það að verkum að bætur hafi dregist aftur úr síðan þrátt fyrir hækkanir inn á milli. „Það er vegna þess að þessi gliðnun átti sér fyrst og fremst stað í kjölfar efnahagshrunsins þá dróst þessi hópur gríðarlega aftur úr. Þrátt fyrir að það hafi verið pólitísk samstaða um að leiðrétta kjörin síðustu ár og þau hafi hækkað hraðar en launavísitala þá er enn talsverður munur á milli launa og bóta. Það er skýr afstaða ríkisstjórnarinnar að leiðrétta þennan mun, “ segir Daði.
Tryggingar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Félagsmál Rekstur hins opinbera Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira