Handbolti

Elín Klara með fjögur mörk í mikil­vægum sigri

Aron Guðmundsson skrifar
Elín Klara er lykilmaður hjá IK Sävehof
Elín Klara er lykilmaður hjá IK Sävehof

Íslenska landsliðskonan í handbolta, Elín Klara Þorkelsdóttir, skoraði fjögur mörk er lið hennar IK Sävehof hafði betur gegn Höörs HK í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 34-23.

Aðeins tveimur stigum munaði á liðunum fyrir leik kvöldsins. Elín og IK Sävehof voru í 2.sæti, stigi á eftir þá toppliði Önnereds og þá fylgdi Höörs þessum liðum eftir í þriðja sæti. 

Eins og lokatölur leiksins gefa til kynna voru yfirburðir IK Sävehof í leiknum miklir. Kim Molenaar fór fyrir liðinu í markaskorun og var með fullkomna skotnýtingu í kvöld, skoraði sjö mörk í sjö tilraunum. 

Þá var Elín Klara öflug með sín fjögur mörk og að lokum fór IK Sävehof sem ellefu marka sigur af hólmi. 

Sigurinn gerir það að verkum að IK Sävehof tyllir sér í toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Þar er liðið með 28 stig, einu stigi meira en Önnereds en á leik til góða.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×