„Mér býður við þessu, satt best að segja“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 07:01 Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, gaf afdráttarlaust svar þegar hann var spurður út í kynþóttaníð og kynþáttafordóma í fótboltanum í dag. Getty/Darren Walsh Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, ræddi kynþáttafordóma í fótbolta á blaðamannafundi sínum en hann var spurður út í atvikið þegar Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, varð fyrir meintu kynþáttaníði í Meistaradeildinni í vikunni og hann gaf afdráttarlaust svar. „
Hver sá sem er fundinn sekur um kynþáttaníð á ekki heima í íþróttinni,“ sagði Liam Rosenior. Hann talar af eigin reynslu og bætir við: „Þegar þú ert dæmdur fyrir eitthvað sem þú ert stoltur af, þá er það það versta sem þú getur ímyndað þér,“ sagði Rosenior. Þó að stjóri Chelsea hafi ekki viljað tjá sig ítarlega á meðan atvikið er í rannsókn segir hann: „Þegar þú sérð leikmann jafn miður sín og Vinicius Junior var, þá er yfirleitt ástæða fyrir því,“ sagði Rosenior. Leikur Benfica og Real Madrid var stöðvaður í tíu mínútur og Vinicius Junior var þá sestur á varamannabekkinn og sakaði leikmann Benfica um að kalla sig apa. Þetta er sorglegt „Þetta er sorglegt. Það þarf alltaf að skoða samhengið. Það sem ég vil segja er að hvers kyns kynþáttafordómar í samfélaginu, ekki bara í fótbolta, eru óásættanlegir. Ég get ekki tjáð mig um atvik sem er í rannsókn. Ég mun ekki tjá mig um það atvik. Það sem ég vil segja er að þegar þú sérð leikmann jafn miður sín og Vinicius Jr. var, þá er hann yfirleitt miður sín af ástæðu,“ sagði Rosenior. Sjálfur orðið fyrir kynþáttaníði „Ég hef sjálfur orðið fyrir kynþáttaníði. Ég þekki fólk sem hefur lent í því og það sem fólk þarf að skilja er að þegar þú ert dæmdur fyrir eitthvað sem þú ættir að vera stoltur af, þá er það það versta sem til er. Ef einhver leikmaður, þjálfari eða stjóri er fundinn sekur um kynþáttafordóma, þá á hann ekki heima í íþróttinni. Svo einfalt er það,“ sagði Rosenior. Hann var spurður út í það sem hann teldi að þyrfti að breytast. „Margt, þetta er mjög flókin staða þegar rætt er um kynþátt eða kyn. Það er margt sem þarf að breytast í samfélaginu. Mér býður við þessu, satt best að segja. Ég held að umræðan sé víðtækari en bara fótbolti. Ég held að það þurfi að vera meiri ábyrgð á þessum hlutum sem þarf að uppræta,“ sagði Rosenior. Mikil sundrung í samfélaginu „Það er mikil sundrung. Það er mikið af fólki í fjölmiðlum sem hefur fyrir fram gefnar hugmyndir um fólk eða hvernig það hagar sér eða hver það er, byggt á kynhneigð þess, frá hvaða landi það kemur frá, hvaða trúarbrögðum það tilheyrir, hvaða húðlit það hefur,“ sagði Rosenior. „Ég held að umræðan sé víðtækari en bara fótbolti. Ég held að fólk ætti að bera mun meiri ábyrgð en það gerir núna, hvað varðar samfélagsmiðla, hvað varðar fjölmiðla, til að tryggja að þessir hlutir séu upprættir því allir ættu að vera dæmdir jafnt út frá innræti sínu,“ sagði Rosenior.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Íslenski boltinn Líkir mótinu við að spila í dýragarði Sport Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Sjá meira