Andrew látinn laus Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 19:32 Lögreglumenn hafa staðið vörð fyrir utan heimili Andrews í Norfolk í dag. EPA Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.
BBC hefur eftir tilkynningu frá lögreglunni í Thames Valley að maður á sjötugsaldri hafi verið látinn laus eftir að hafa verið handtekinn fyrr í dag vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Sem fyrr vill lögregla ekki nafngreina Andrew þó að fyrir liggi að um hann ræði. Í tilkynningunni segir jafnframt að húsleitum í Norfolk vegna málsins sé nú lokið. Samkvæmt heimildum BBC standa húsleitir enn yfir í bústað konungsfjölskyldunnar í Berkshire. Á mynd sem fréttastofa Reuters hefur undir höndum sést Andrew yfirgefa Aylsham-lögreglustöðina í aftursæti svarts Range Rover bíls. Andrew á 66 ára afmæli í dag. Former Prince Andrew looks terrified as he leaves jail hours after arrest https://t.co/l8WG4bLKlS pic.twitter.com/Q4kEpCIzot— Page Six (@PageSix) February 19, 2026 Vísir hefur fylgst grannt með gangi mála í vaktinni í dag. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu fyrst á heimili hans í morgun til að afla gagna og handtaka prinsinn fyrrverandi vegna rannsóknar á hinum meinta leka. Rannsókn lögreglu snýr að tímanum sem Andrew gegndi hlutverki sérstaks erindreka Bretlands. Fyrrverandi prinsinn hefur áður verið sakaður um önnur brot í tengslum við Epstein, meðal annars að hafa nauðgað Virginiu Guiffre auk þess sem fullyrt hefur verið að önnur kona á þrítugsaldri hafi verið send til Bretlands af Epstein fyrir Andrew. Hann hefur ávallt neitað sök. Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar, fréttina má sjá hér að neðan. Fréttin hefur verið uppfærð.
Mál Andrésar prins Kóngafólk Bretland Mál Jeffrey Epstein England Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent Fleiri fréttir Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Sjá meira