Mosfellingar enduðu taphrinuna og Haukakonur unnu fyrir norðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2026 20:38 Ihor Kopyshynskyi var markahæstur hjá Mosfellingum í kvöld. Vísir/Diego Þriggja leikja taphrina Aftureldingar endaði í kvöld í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þökk sé góðum endaspretti á móti Stjörnunni. Haukakonur koma brosandi heim frá Akureyri eftir stórsigur í Olís-deild kvenna.
Stjörnumenn voru búnir að tapa sjö deildarleikjum í röð þegar þeir heimsóttu Aftureldingu og þeir voru tveimur mörkum yfir á lokakafla leiksins og sáu langþráðan sigur í hillingum. Þá komu fjögur mörk í röð hjá Mosfellingum sem unnu að lokum eins marks sigur, 29-28. Þetta var fyrsti sigur Aftureldingar eftir að deildin fór af stað á ný eftir EM- og jólafrí. Stjörnumenn byrjuðu leikinn vel og voru lengi með tveggja marka forystu í fyrri hálfleiknum en í stöðunni 14-12, skoruðu Mosfellingar þrjú mörk í röð og tóku frumkvæðið. Afturelding var síðan einu marki yfir í hálfleik, 16-15. Stjarnan var síðan aftur komin með tveggja marka forskot í seinni hálfleik þegar heimsmenn fóru í gang og redduðu sér. Harri Halldórsson, Ihor Kopyshynskyi, Ævar Smári Gunnarsson og Oscar Sven Leithoff Lykke skoruðu allir fimm mörk fyrir Aftureldingu en Hans Jörgen Ólafsson var markahæstur hjá Stjörnunni með tíu mörk en Benedikt Marinó Herdísarson bætti við sjö mörkum og sex stoðsendingum. Haukakonur gerðu góða ferð norður til Akureyrar og unnu ellefu marka sigur á heimakonum í KA/Þór, 31-20. Haukaliðið náði mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik en munurinn var aðeins tvö mörk í hálfleik, 15-13, fyrir Hauka. Í seinni hálfleik sigu gestirnir aftur fram úr og unnu mjög öruggan sigur. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var öflug hjá Haukum með níu mörk og þrjár stoðsendingar en þær Inga Dís Jóhannsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoruðu fimm mörk hvor. Susanne Denise Pettersen var markahæst hjá KA/Þór með fimm mörk. Haukaliðið er í þriðja sæti með 21 stig og sex stigum meira en KA/Þór sem er í sjötta sætinu.
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Haukar KA Þór Akureyri Stjarnan Afturelding Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira