Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Kjartan Kjartansson skrifar 20. febrúar 2026 08:56 Konan valdi sér stærri umgjörð en í eldri gleraugum. Verslunin hélt því fram að óþægindi hennar væru eðlileg vegna þess hversu glerin voru þynnt. Myndin er úr safni. Vísir/Getty Fyrirtæki sem seldi konu gleraugu með glerjum sem hentuðu henni ekki þarf að endurgreiða henni glerin eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð um kvörtun konunnar. Deilt var um hvort að sjónmæling sem gerð var á konunni hafi verið nákvæm.
Konan kvartaði undan óþægindum innan við viku eftir að hún fékk gleraugun afhent í febrúar í fyrra. Sjónin með gleraugunum hefði verið eins og hún væri ölvuð og hún hefði fundið fyrir verkjum þegar hún notaði þau lengi í senn. Verslunin gaf þær skýringar að óþægindin væru eðlileg vegna þess hve glerin í umgjörðinni, sem var nokkuð stærri en í eldri gleraugum konunnar, væru þynnt. Það tæki tíma að venjast glerjunum. Konunni var meðal annars boðin ný sjónmæling, sem skilaði svipuðum niðurstöðum og sú fyrri, daufari gler og afslátt af nýjum glerjum. Hún lagði aftur á móti fram niðurstöður annarrar sjónmælingar sem Áður en málið var til lykta leitt hætti verslunin rekstri. Af þeim sökum sögðust forsvarsmenn þess hvorki geta útbúið ný gleraugu fyrir konuna né endurgreitt henni. Gölluð frá upphafi Kvörtun konunnar til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa byggði á því að verslunin hefði gert mistök við sjónmælinguna og að styrkjur glerjanna hefði fyrir vikið verið of hár. Krafðist hún þess að fá annað hvort ný gler eða að verslunin endurgreiddi henni hundrað þúsund krónur sem hún greiddi fyrir glerin. Verslunin hafnaði því og sagði meðal annars að ekki hefði verið óeðlilegur munur á sjónmælingum á konunni. Konan lagði fram nýja sjónmælingu en niðurstöður hennar voru að glerin sem hún keypti af versluninni væru frekar sterk. Kærunefndin benti á að umtalsverður munur hefði verið á niðurstöðum þeirrar mælingar og þeirrar sem verslunin sem seldi konunni gleraugun gerði. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að forsvarsmenn verslunarinnar hefði ekki sýnt fram á að glerin sem byggðu á sjónmælingu þeirra hefðu ekki verið gölluð við afhendingu. Gallinn gerði gleraugun ónothæf fyrir konuna. Niðurstaðan var því að verslunin ætti að endurgreiða konunni hundrað þúsund krónur fyrir glerin gegn því að hún skilaði þeim.
Neytendur Úrskurðar- og kærunefndir Augnheilsa Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira