Loka sundlaugum vegna loðnuvertíðar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 14:40 Sundlauginni Guðlaug hefur verið lokað að beiðni Veitna. Vísir/Vilhelm Veitur biðla til íbúa og fyrirtækja á Akranesi að huga að notkun kalda vatnsins næstu vikur. Tveimur sundlaugum hefur verið lokað að beiðni Veitna en að baki er sögulega löng þurrkatíð og loðnuvertíðin fram undan. „
Með þessum aðgerðum er markmiðið að lágmarka álag á vatnsforða bæjarins á meðan loðnuvertíð stendur yfir,“ segir í fréttatilkynningu frá Veitum. Að baki eru einhverjir mestu þurrkar þessa árstíma í nær heila öld. „Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella. Á meðan loðnuvertíð stendur yfir eykst heildarvatnsþörf í bænum verulega.“ Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir í samtali við fréttastofu að vatnsbólin á Akranesi séu sérstaklega viðkvæm fyrir veðurfari og því séu íbúarnir beðnir um að fara vel með kalda vatnið. „Til að tryggja nægt vatn á meðan vertíð og þurrkar standa yfir biðla Veitur til íbúa og fyrirtækja að huga sérstaklega að notkun kaldavatnsins næstu vikur. Um er að ræða tímabundið ástand. Sveitarfélagið leggur einnig sitt af mörkum og grípur til aðgerða þar sem við á, meðal annars með því að loka Jaðarsbakkalaug tímabundið, enda nýtir hún mikið vatn,“ segir í tilkynningunni. Þá hefur sundlauginni Guðlaugu á Akranesi einnig verið lokað yfir helgina að beiðni Veitna. „Loðnuvertíðin er mikilvæg fyrir atvinnulíf á Akranesi. Hrognavinnsla skapar störf og verðmæti allt árið. Undanfarið hafa Veitur og Brim unnið saman að því að draga úr álagi á neysluvatnskerfið,“ segir í tilkynningunni.
Sund Sundlaugar og baðlón Akranes Vatn Loðnuveiðar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira