„Mér gæti ekki verið meira sama um stöðuna í ensku úrvalsdeildinni“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. febrúar 2026 08:33 Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, kom með Pep-legt svar á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar. Getty/Martin Rickett Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City fullyrti að honum „gæti ekki verið meira sama“ um að baráttan um titilinn í ensku úrvalsdeildinni væri að harðna.
Manchester City á leik til góða og mætir erkifjendunum í Arsenal í apríl. Liðið veit því að ef það vinnur alla leikina sem eftir eru verður það aftur enskur meistari, eftir að Arsenal missti niður forystu og gerði jafntefli við Wolves í miðri viku. Fimm stig á milli liðanna Bilið er nú komið niður í fimm stig en þegar Guardiola var spurður hvort hann teldi að City ætti nú betri möguleika en fyrir nokkrum mánuðum fullyrti hann að eina áherslan væri á heimaleikinn gegn Newcastle á laugardag. „Ég veit ekki hvað mun gerast í næstu tólf leikjum. Ég hef ekki rætt það í eina sekúndu við leikmenn mína. Í gær, daginn þar áður, bara Newcastle, Newcastle og Newcastle,“ sagði Guardiola. „Ég talaði ekki um stöðuna í deildinni, ég talaði ekki um sætið. Mér gæti ekki verið meira sama um stöðuna í ensku úrvalsdeildinni. Ef þú spyrð mig þessarar spurningar þegar tveir eða þrír leikir eru eftir, þá skal ég svara þér,“ sagði Guardiola. Heil eilífð eftir „Það eru tólf leikir eftir, það er heil eilífð. Það eina sem ég veit fyrir víst er að margt mun gerast,“ sagði Guardiola. Guardiola vísaði einnig á bug þeirri fullyrðingu að reynsla liðsins af því að vinna titla myndi skipta sköpum og bætti við: „Sjötíu prósent leikmannanna eru nýir svo þeir hafa ekki reynslu af því að takast á við svona aðstæður.“ City fékk sjaldgæft frí í miðri viku og Guardiola viðurkenndi að liðið hefði verið úrvinda fyrir leikinn í enska bikarnum gegn Salford um síðustu helgi. Margir mánuðir með fáum frídögum „Það mikilvægasta er að leikmennirnir séu endurnærðir,“ sagði hann. „Við höfum átt marga mánuði með fáum frídögum. Ég þarf ekki að hlaupa einn metra svo fyrir mig er það ekkert vandamál, eftir einn eða tvo daga sef ég vel, það er nóg. Leikmennirnir hafa æft vel síðustu tvo daga,“ sagði Guardiola. Erling Haaland er væntanlegur aftur í hópinn og Savinho er einnig klár í slaginn eftir að hafa ekki spilað síðan í byrjun janúar vegna meiðsla í læri, en kantmaðurinn Jérémy Doku er enn frá keppni. Einn af lykilmönnum City síðasta mánuðinn hefur verið Antoine Semenyo, sem hefur fallið óaðfinnanlega inn í liðið eftir komu sína frá Bournemouth. Guardiola hefur verið himinlifandi með frammistöðu framherjans og sagði: „Það snýst ekki bara um að skora mikið af mörkum hjá þeim sem spila framarlega.“ „Fjölhæfnin, hann getur spilað í öllum þremur stöðunum, við vissum það, og hjá Bournemouth eru þeir einstakir í takti og varnarlega, svo hann hefur það í sínu DNA. Áhrifin hafa verið virkilega góð,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Íslenski boltinn Líkir mótinu við að spila í dýragarði Sport Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Sjá meira