Vökuliðar frestuðu afgreiðslu á vantrauststillögu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2026 18:24 Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Vísir/Sigurjón Stúdentaráð Háskóla Íslands ákvað í dag á fundi ráðsins að fresta afgreiðslu vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, fram til næsta Stúdentaráðsfundar. Sú ákvörðun að fresta afgreiðslu tillögunnar var tekin af stúdentaráðsliðum Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vöku en fundur Stúdentaráðs hófst klukkan 17:30. Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands sem eru jafnframt í meirihluta lögðu fyrr í vikunni fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur rektornum, vegna meints ábyrgðarleysis í hækkun skrásetningargjalda. Skrásetningargjaldið verður hækkað um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári, hefur verið 75 þúsund krónur frá 2013 en verður nú 100 þúsund krónur. Sendi Silja Bára frá sér yfirlýsingu vegna málsins í gær. Þar ítrekaði hún meðal annars samstarfsvilja sinn með stúdentum. Sagðist hún ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Vilja ná niðurstöðu í samráði við rektor Í tilkynningu frá Vöku segir að stúdentar vilji reyna allt sem í sínu valdi stendur til að ná fram niðurstöðu í samráði við rektor, sem yrði ásættanleg fyrir alla stúdenta við Háskóla Íslands. „Þar með krefjumst við aukins samráðs við rektor og munum við halda áfram að berjast fyrir umbótum í þessar tvær vikur sem eru fram undan þar til næsti Stúdentaráðsfundur er haldinn,“ segir í tilkynningunni. „Verði engin breyting á afstöðu rektors munu stúdentaráðsliðar Vöku aftur leggja fram vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur.“
Hagsmunir stúdenta Háskólar Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. 23. febrúar 2026 16:45 Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði. 12. febrúar 2026 16:21 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Viðreisn heldur starfsheimildum en framlagið fylgir Jóni BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Sjá meira
Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. 23. febrúar 2026 16:45
Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði. 12. febrúar 2026 16:21