Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2026 23:47 Stúdentaráðsliðar Röskvu. Fulltrúar Röskvu í Stúdentaráði Háskóla Íslands segja Vökuliða hafa hlaupið á sig með vantrauststillögu á hendur rektor skólans. Tillagan hafi verið byggð á röngum upplýsingum.
Greint var frá því fyrr í kvöld að Vaka hefði ákveðið að fresta tillögu um vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskóla Íslands. Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands sem eru jafnframt í meirihluta lögðu fyrr í vikunni fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur rektornum, vegna meints ábyrgðarleysis í hækkun skrásetningargjalda. Skrásetningargjaldið verður hækkað um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári, hefur verið 75 þúsund krónur frá 2013 en verður nú 100 þúsund krónur. Atburðarásin hafi verið leikþáttur „Stúdentaráðsliðar Vöku hafa hlaupið á sig. Þau lögðu fram vantrauststillögu á rektor byggða á röngum upplýsingum um úrskurð áfrýjunarnefndar og ætla þau núna að fresta umræðu um eigin tillögu sem þau hafa nú þegar farið fram með í fjölmiðla. Upplýsingar sem fulltrúi þeirra í Háskólaráði og starfsmenn skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefðu léttilega geta nálgast,“ segir í tilkynningu Röskvu. „Þau fresta vantrauststillögunni vegna samtals sem þau áttu við rektor, þetta samtal hefði átt að eiga sér stað áður en lögð var fram vantrauststillaga. Með henni er samstarf og samtal við rektor sett í hættu og þar með hagsmunabarátta stúdenta í leiðinni. Vinnubrögðin sýna fram á ábyrgðarleysi og vanhæfni meirihluta Vöku, vinnubrögð sem skaða trúverðugleika Stúdentaráðs Háskóla Íslands.“ Segir ennfremur að atburðarás undanfarna daga hafi verið leikþáttur í boði meirihluta Vöku sem Röskva segir að þjóni ekki hagsmunum stúdenta. „Hún átti kannski að þjóna Vöku í kosningabaráttu en augljóst er að sú áætlun hefur ekki gengið upp. Stúdentaráðsliðar Röskvu og fulltrúi hreyfingarinnar í háskólaráði voru mynduð eftir fundinn full af baráttugleði. Við sem stúdentahreyfing munum aldrei sitja þegjandi undir vondum vinnubrögðum sem eru ekki Stúdentaráði Háskóla Íslands til sóma.“
Háskólar Hagsmunir stúdenta Skóla- og menntamál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira