Tókust á í stúdíóinu: „Hvernig á hann að geta annað en rekið hann útaf?“ Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2026 15:18 Lloyd Kelly fékk að líta rauða spjaldið snemma í seinni hálfleik. Getty/Riccardo De Luca Menn voru algjörlega ósammála í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport í gærkvöld, um hvort að rétt hefði verið að reka Lloyd Kelly af velli í leik Juventus og Galatasaray.
Kelly fékk beint rautt spjald á 49. mínútu, eftir að öðru gula spjaldi hans var breytt í rautt, fyrir brot á Baris Yilmaz, og voru Juventus-menn því manni færri eftir það. „Mér finnst þetta fáránleg ákvörðun. Fáránleg niðurstaða. Hann er alltaf með augun á boltanum, stekkur upp og boltinn á leiðinni niður. Mér finnst þetta mjög harður dómur,“ sagði Albert Brynjar Ingason. Atli Viðar Björnsson var honum algjörlega ósammála en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Umræða um rauða spjaldið á Kelly „En ef þú sérð afleiðingarnar? Hvernig á hann að geta annað en rekið hann út af?“ spurði Atli Viðar. „Það verða slys í lífinu og óhöpp inni á fótboltavellinum. Ég veit að það er ekki mikill ásetningur þarna en niðurstaðan er samt sem áður sú að hann stígur á Tyrkjann þarna. Fyrir mér getur þetta ekki verið annað en spjald,“ bætti Atli Viðar við en Albert var enn langt frá því að verða sannfærður: „Hann er bara í loftinu og veit ekki einu sinni hvar Yilmaz er þegar hann er að lenda. Hvað getur hann gert?“ Juventus tókst þó að skora tvö mörk eftir rauða spjaldið og koma einvíginu í framlengingu en þar reyndust gestirnir frá Tyrklandi sterkari og skoruðu tvö mörk. Þeir spila því í 16-liða úrslitum keppninnar en dregið verður á morgun.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tengdar fréttir Sjáðu mörkin, rauðu spjöldin og takka í höfði á ögurstundu Real Madrid, PSG, Atalanta og Galatasaray hirtu í gærkvöld síðustu fjögur sætin í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Nóg var af mörkum, rauðum spjöldum og dramatík í leikjunum í gær eins og sjá má í klippum á Vísi. 26. febrúar 2026 10:30 Mest lesið Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Sjá meira
Sjáðu mörkin, rauðu spjöldin og takka í höfði á ögurstundu Real Madrid, PSG, Atalanta og Galatasaray hirtu í gærkvöld síðustu fjögur sætin í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Nóg var af mörkum, rauðum spjöldum og dramatík í leikjunum í gær eins og sjá má í klippum á Vísi. 26. febrúar 2026 10:30