Fótbolti

Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu

Sindri Sverrisson skrifar
Orri Steinn Óskarsson var í stuði gegn Búlgaríu í dag.
Orri Steinn Óskarsson var í stuði gegn Búlgaríu í dag. vísir/Anton

Orri Steinn Óskarsson var í ham í 3-0 sigri Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi.

Orri kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik þegar hann kláraði færið sitt afar vel eftir frábæran undirbúning æskuvinanna Hákons Arnars Haraldssonar og Ísaks Bergmanns Jóhannessonar.

Í seinni hálfleiknum, á 59. mínútu, bætti Orri við sínu öðru marki og kom Íslandi í 2-0 með skoti af stuttu færi eftir sendingu Mikael Anderson af hægri kantinum.

Orri fékk tækifæri til þess að innsigla þrennu sína þegar Ísland fékk vítaspyrnu en spyrna hans var varin. 

Ísland vann engu að síður 3-0 því Orri átti svo stoðsendingu á Mikael Egil Ellertsson sem innsiglaði sigurinn.


Tengdar fréttir

Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra?

Hér fer fram textalýsing frá leik Íslands og Búlgaríu í þriðju umferð í riðlakeppni Þjóðadeildar karla í fótbolta. Flautað verður til leiks á Laugardalsvelli klukkan 16:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport.

„Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“

„Tja, það er fjölbreytni í leiknum…“ sagði Bjarni Guðjónsson á Sýn Sport í hálfleik, ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu manna í fyrri hálfleik í leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×