Viðskipti innlent

„Það er ein­hvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er svekktur yfir verðbólguþróuninni.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er svekktur yfir verðbólguþróuninni. Vísir/Sigurjón

Það eru gríðarleg vonbrigði að verðbólga mælist ekki á niðurleið og þrálát verðbólga til lengri tíma er óviðunandi að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Honum hugnast þó ekki hugmyndir um að breyta opinberum gjöldum í því skyni að lækka verðbólgu. Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans verður um miðjan mars, og nýjasta verðbólgumæling þykir ekki til marks um að líklegt sé að meginvextir bankans verði lækkaðir.

Ný ríkisstjórn tók við fyrir fjórtán mánuðum, í desember 2024, en síðan hafa vextir lækkað hægar en vonast var til og verðbólga hefur heilt yfir aukist og stendur í stað á milli mánaða samkvæmt nýjustu mælingu.

„Þetta eru mikil vonbrigði og við sáum svo sem vísbendingar um þetta í síðustu mælingu, en við sjáum það glögglega í þessari mælingu sem er þá alveg laus við öll áhrif breytinga á opinberum gjöldum, að það er ennþá töluverður undirliggjandi verðbólguþrýstingur,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra. Við það ástand sé ekki hægt að una lengi.

Hvað skýrir þessa stöðu að mati Daða?

„Ég held að þetta vandamál hafi verið vel þekkt, og að þessi síðasti hjalli, það var alltaf reiknað með að hann yrði erfiður og það hefur hann reynst. Þar koma auðvitað margir hlutir saman. En við höfum verið alveg skýr með það að haga ríkisfjármálunum til stuðnings þeirri vegferð Seðlabankans að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum og það munum við gera áfram.“

En hvað er til ráða?

„Allir eru með hugmyndir og það hafa til dæmis verið þarna úti hugmyndir um að breyta opinberum gjöldum til þess að beinlínis lækka verðbólgumælinguna. Vandamálið er bara það að það hjálpar okkur ekki, það er einhvers konar pissa í skóinn sinn hagfræði. Það sem við þurfum þvert á móti er að halda okkur við að ná hér hallalausum fjárlögum, að ríkið sé ekki að stuðla að þenslu og þannig að styðja við þá vegferð Seðlabankans að ná niður verðbólgu,“ svarar Daði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×