Fjórða tap Tottenham í röð og fallhættan heldur áfram Sindri Sverrisson skrifar 1. mars 2026 15:57 Harry Wilson hefur verið frábær fyrir Fulham í vetur. Getty/Harry Murphy Fulham kom sér upp í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með 2-1 sigri gegn Tottenham. Brighton vann sömuleiðis 2-1 gegn Nottingham Forest.
Þetta var fjórða tap Tottenham í röð og liðið hefur nú tapað báðum leikjum sínum eftir að Thomas Frank var rekinn og Igor Tudor ráðinn. Gengi Tottenham er það versta af öllum liðum deildarinnar á árinu 2026 og hefur liðið ekki unnið deildarleik síðan það vann Crystal Palace 28. desember. Liðið er fjórum stigum frá fallsæti, í 16. sæti, en enn með Nottingham Forest fyrir neðan sig því Forest tapaði í dag. Harry Wilson og Alex Iwobi komu Fulham í 2-0 í fyrri hálfleik gegn Tottenham en markið frá Iwobi var sérlega glæsilegt; viðstöðulaust skot í stöng og inn. Richarlison minnkaði muninn um miðjan seinni hálfleik en það dugði ekki fyrir gestina. Þrjú mörk í upphafi hjá Brighton og Forest Mörkin í sigri Brighton á Forest komu öll á fyrsta korterinu. Diego Gómez kom Brighton í 1-0 en Morgan Gibbs-White jafnaði metin á 13. mínútu. Danny Welbeck sá til þess að Brighton kæmist strax yfir að nýju og það reyndist á endanum sigurmarkið. Brighton er því með 37 stig í 11. sæti en Forest situr eftir í 17. sæti með 27 stig, tveimur stigum á eftir Tottenham og tveimur á undan West Ham, nú þegar tíu umferðir eru eftir. Standings provided by Sofascore
Enski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti