Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 11:32 Framherjinn Oli McBurnie losaði sig bara við þessa gusu og hélt svo áfram að spila. x Framherjinn Oli McBurnie lét ekki smá ælupest stoppa sig í því að hjálpa Hull City að krækja í mikilvæg stig í ensku B-deildinni í fótbolta um helgina.
McBurnie og félagar í Hull City unnu mikilvægan 1-0 útisigur á Portsmouth um helgina og þessi þrjú stig skiluðu liðinu upp í fimmta sætið í deildinni sem myndi þýða sæti í umspilinu um laust sæti í ensku úrvalsdeidinni. McBurnie spilaði allar níutíu mínúturnar í umræddum leik sem er fréttnæmt miðað við það sem gekk á hjá honum á leið út á völlinn í hálfleik. 🤣🤣🤣🤮#hcafc https://t.co/zQMUPNjihO pic.twitter.com/3Gzp6YnuJv— Championship Terrace Talk (@ChampionshpTalk) February 28, 2026 Þegar leikmennirnir bjuggu sig undir seinni hálfleikinn hallaði McBurnie sér skyndilega fram og setti hendurnar á hnén. Liðsfélagi hans var á leiðinni til McBurnie en leit fljótt undan. Framherjanum leið alls ekki vel og ældi á grasið. „Ég gat ekki haldið aftur af mér,“ sagði Oli McBurnie seinna en hann ældi beint út á völlinn. Hann hélt samt áfram að spila og hefur sjálfur skýringu á myndunum. „Kannski þarf að minnka koffíngelið í hálfleik,“ skrifaði McBurnie á X eftir leik. Eftir æluna virðist hann líka hafa náð sér fljótt því McBurnie spilaði restina af leiknum og eftir leik fagnaði hann sigrinum með aðdáendum sem höfðu ferðast suður til Portsmouth. Framherjinn skoraði reyndar ekki mark í leiknum en liðsfélaginn Matt Crooks skoraði eina mark leiksins á 73. mínútu.
Enski boltinn Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira