Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 2. mars 2026 07:10 Frost á landinu verður á bilinu núll til átta stig. Vísir/Vilhelm Ört dýpkandi lægð er nú á leið til norðurs fyrir austan land og fylgja henni vaxandi norðvestanátt á austurhelmingi landsins. Reikna má með 18 til 28 metrum á sekúndu á þeim slóðum eftir hádegi, hvassast í vindstrengjum á Austurlandi og Austfjörðum.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að auk þessa mikla vinds sé útlit fyrir snjókomu og skafrenningskóf á svæðinu frá Tröllaskaga og austur á firði. Frost á landinu verður á bilinu núll til átta stig. „Gular viðvaranir taka gildi í tilheyrandi landshlutum í dag, og versti kaflinn á spásvæðunum Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum hefur verið rammaður inn með appelsínugulri viðvörun. Þar má búast við stórhríð þegar verst lætur og einnig er spáð slíkri veðurhæð að möguleiki er á foktjóni, t.d. að losni þakplötur á stöku stað. Á vestanverðu landinu verður vindur mun hægari, yfirleitt kaldi eða strekkingur og él fram eftir degi, en þurrt að mestu suðvestanlands. Svalt í veðri. Í kvöld styttir upp fyrir austan, þá fer einnig að draga úr vindi og í fyrramálið verður þetta illviðri úr sögunni. Á morgun nálgast næsta lægð úr suðvestri. Þá gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt sunnan- og vestanlands með snjókomu og síðar rigningu eða slyddu, og líkur eru á að færð spillist á einhverjum fjallvegum um tíma. Á norðaustanverðu landinu verður vindur hins vegar hægari og lengst af úrkomulítið. Hlýnar í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Seint á morgun dregur úr vindi, og á miðvikudag er svo útlit fyrir sunnan kalda eða strekking með éljum sunnan- og vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Gengur í suðaustan 13-20 m/s með snjókomu og síðan rigningu eða slyddu, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi, hiti 0 til 8 stig síðdegis. Suðaustan og sunnan 8-15 um kvöldið og kólnar vestanlands með éljum. Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 5-13 og él sunnan- og vestanlands, annars bjart að mestu. Frost víða 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Suðlæg átt 5-13 og él, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið með slyddu eða snjókomu sunnanlands. Á föstudag: Ákveðin sunnanátt og snjókoma eða él, en styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti um eða undir frostmarki. Á laugardag: Hvöss sunnan- og suðaustanátt og snjókoma eða slydda, en rigning um tíma á láglendi. Úrkomuminna seinnipartinn. Hiti um eða yfir frostmarki. Á sunnudag: Suðvestanátt og él, en bjart að mestu norðaustanlands. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira