Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 3. mars 2026 19:01 Ríkisstjórnin boðar aðgerðir gegn verðbólgunni. Ágúst Arnórsson hagfræðingur segir matvöruhækkanir mun hærri en spár hafi gert ráð fyrir og hærri en launahækkanir frá undirritun Stöðugleikasamninga 2024. Vísir Verðhækkanir eru langt umfram allar spár að sögn hagfræðings hjá ASÍ. Matvöruverð hafi hækkað meira en laun samkvæmt stöðuleikasamningunum. Fjármálaráðherra segir að von sé á aðgerðum gegn verðbólgu á næstu dögum.
Samkvæmt Verðlagseftirliti ASÍ hefur matur hækkað um 7,8 prósent frá því Stöðugleikasamningarnir svokölluðu voru undirritaðir í mars 2024. Hagstofan mælir níu prósenta hækkun á matarverði á tímabilinu. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 8,8 prósent síðan þá. Laun hafa hins vegar hækkað um 7,1 prósent á tímabilinu samkvæmt kjarasamningum. Matvörur hafa hækkað langmest hjá Extra og Fjarðarkaupum eða frá ríflega 10- 12 prósentum. Hækkanir og aukning á verði og vísitölum frá undirskrift stöðugleikasamninga í mars 2024. Heimild: ASÍ. Hækkanirnar mikil vonbrigði Ágúst Arnórsson hagfræðingur hjá ASÍ segir þetta ár byrja illa þegar kemur að verðþróun. „Það kom mjög vond mæling í síðustu viku og í rauninni framhald af vonbrigðum í janúar. Það eru umtalsverðar hækkanir á því sem að við köllum á breiðum grunni. Það er í raun matvaran sem heldur áfram að hækka í tvo mánuði í röð en það eru líka aðrir þættir í vísitölunni sem eru að hækka og við höfum áhyggjur af því,“ segir Ágúst. Klippa: Matarkarfan hækkar Hann segir að verði ekki tekið á málum sem fyrst gætu forsendur kjarasamninganna frá 2024 verið brostnar. „Þessar hækkanir eru langt umfram spár okkar og helstu greiningaraðila. Stöðugleiki var markmiðið með kjarasamningunum og í dag er hann minni en gert var ráð fyrir í þeim. Það eru forsenduákvæði í kjarasamningnum sem að koma til skoðunar í haust sem miða við verðbólgutölurnar í ágúst og ef að þær eru umfram viðmiðið 4,7 prósent þá eru forsendur hans brostnar,“ segir Ágúst. Ríflega þriðjungs verðmunur á hæstu og lægstu matarkörfunni Fréttastofa kannaði hæsta og lægsta verð á ellefu algengum matvælum hjá verðlagseftirliti ASÍ og á vefnum. Í ljós kom að ríflega þriðjungs verðmunur var á ódýrustu og dýrustu matarkörfunni með sömu eða sambærilegum matvælum. Þannig kostaði ódýrasta matarkarfan um 10.800 krónur en dýrasta karfan um 14.600 krónur. Ríflega þriðjungs verðmunur var á ódýrustu og dýrustu matarkörfunni með sömu eða sambærilegum matvælum. Einnig má sjá tölur úr frétt Stöðvar 2 frá 2017. Heimild: ASÍ. Stjórnvöld boða aðgerðir Ráðmenn boða aðgerðir gegn verðbólgunni sem var 5,2 prósent í síðustu tveimur mælingum. „Við erum núna í mjög gagnlegu samtali við aðila vinnumarkaðarins um hvernig og hvað við getum gert til að ná niður verðbólgunni. Það má búast við að við greinum frá niðurstöðum þess á allra næstu dögum,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur í sama streng. „Við áttum fund með Þjóðhagsráði í gær, það var góður fundur. Það eru allir meðvitaðir um að það þarf samstillt átak til þess að, að ná verðbólgunni niður,“ segir Kristrún.
Verðlag ASÍ Matvöruverslun Neytendur Kjaramál Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira